Þveráætlanir
Þveráætlanir (transversal programmes) snerta allar áætlanir menntáætlunar Evrópusambandsins. Undir þær flokkast námsheimsóknir, nýsköpun og stefnumótun, upplýsingatækni, tungumál, miðlun og hagnýting upplýsinga.
Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með öllum þveráætlunum. Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.


