Comenius nemendaskipti á framhaldsskólastigi, 16-20 ára, „Individual pupil mobility“.
Nemendaskipti á framhaldsskólastigi eru ný af nálinni í Comenius áætluninni og hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að taka þátt frá og með 2012.
Evrópskir framhaldsskólar sem þegar hafa tekið þátt í Comeniusarsamsamstarfi geta sótt um styrki til að skipuleggja nemendaskipti í samvinnu við samstarfsskóla.
Væntanlegir þátttakendur, sem valdir verða af skólunum, þurfa að hafa náð 16 ára aldri og vera í fullu námi við skóla og uppfylla ákveðin skilyrði.
Öll lönd sem taka þátt í menntaáætluninni, nema Kýpur, Þýskaland, Írland og Bretland, eru þátttakendur i þessum nýja styrkmöguleika. Bæði sendiskólinn og gistiskólinn verða að vera í einu þessara landa. Styrkir eru veittir til sendiskóla sem útdeilir síðan styrkjum til sinna nemenda.
Sendiskólarnir fá styrkinn greiddan frá Landskrifstofu sinni. Sendiskólinn ber ábyrgð á meðferð og ráðstöfun fjármagnsins. Styrkurinn er til greiðslu eftirfarandi kostnaðar:
- Stjórnunarkostnaðar hjá sendiskólanum
- Kostnaðar við tungumálaþjálfun nemandans
- Stjórnunarkostnaðar hjá gistiskólanum, þ.m.t. kostnaður vegna leiðbeinanda
- Ferðakostnaðar fram og til baka fyrir nemandann (þ.m.t. ferðakostnaður innanlands)
- Mánaðarlegra vasapeningar fyrir nemandann
Kostnaður í tengslum við skyldunámskeið nemenda og kennara verður greiddur beint af landskrifstofunni.
Á meðan á dvöl þeirra stendur njóta nemendurnir verndar Comenius hóptryggingar sem AXA veitir fyrir hönd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.



