Fyrirmyndarverkefni
Hér fyrir neðan geturðu nálgast upplýsingar um fyrirmyndarverkefni eftir verkefnaflokkum.
Reynslusögur þátttakenda
Tekin hafa verið viðtöl við nokkra þátttakendur í verefnum sem unnin hafa verið með styrk frá Menntaáætlun ESB.
Smelltu hér til að skoða viðtölin.
Verkefnabankar ESB
Hægt er að nálgast upplýsingar um verkefni, þar á meðal íslensk, í þremur verkefnabönkum. Adam - verkefnabankanum sem hýsir Leonardo starfsmenntaverkefni, EST-verkefnabankinn sem hýsir Comeniusar, Leonardo og Grundtvig samstarfsverkefni og svo EVE-verkefnabankanum sem er Eve er upplýsingagátt fyrir verkefni innan evrópsku mennta- og ungmennaáætlunarinnar. Hér fyrir neðan finnurðu upplýsingar um verkefnabankana þrjá.
EVE verkefnaabankinn
Eve er upplýsingagátt fyrir verkefni innan evrópsku mennta- og ungmennaáætlunarinnar. Hér er hægt að nálgast þúsundir verkefna og afurðir Leonardo, Comenius, Erasmus og Grundtvig verkefna, einnig íslenskra. Eve heldur utan um verkefni sem styrk hafa verið af Evrópusambandinu. Í gegnum Eve geturðu fengið aðgang að ýmis konar námsefni, handbókum, ljósmyndum og mörgu fleira.
Í Eve ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi!
Adam verkefnabankinn
ADAM er gagnabanki sem ætlað er að miðla verkefnum og afurðum innan Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB.
Sífellt koma fram á sjónarsviðið nýjar afurðir Leonardó verkefna sem eru sérsniðnar að kröfum starfsmenntunar í skólum og fyrirtækjum.
Með því að nýta þér ADAM - gagnagrunninn geturðu aflað þér upplýsinga um afurðir Leonardó verkefna. Til þess eru tvær leiðir: Annað hvort slærðu inn leitarorð inn í reitinn "Search for Projects and Products" og þá færðu upplýsingar úr gagnagrunninum um þau verkefni sem samsvara leitarorðum þínum eða þú getur gert ítarlegri leit með því að smella á "Extended Search".
Ert þú verkefnisstjóri Leonardo verkefnis og vilt gera afurðir verkefnis þíns aðgengilegar almenningin? Skráðu þá verkefnið þitt í ADAM gagnagrunninn.
Heimasíða gagnabankans er: www.adam-europe.eu
Þematengd samstarfsverkefni (thematic networking) Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Allt frá því að menntaáætlun Evrópusambandsins (LLP) var hleypt af stokkunum árið 2007 hefur verið stofnað til hundruða verkefna á öllum skólastigum. Landskrifstofur Menntaáætlunar ESB hafa stofnað til samstarfsverkefna með styrk frá Evrópusambandinu til að halda utan um og miðla afurðum þessara verkefna.


