Leonardo da Vinci - starfsmenntun
Öll verkefni sem Leonardo áætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri þessara markmiða:
- Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
- Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
- Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og starfsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun
Fréttir og tilkynningar
Landskrifstofu hefur borist erindi frá Famkvæmdastjórn Evrópusambandins þar sem auglýstur er opinn umræðufundur á Netinu þann 17. september. Umræðuefni fundarins er "Youth on the Move" átakið sem felst í því að hvetja ungt fólk í Evrópu til að taka huta af sínum námi í öðru Evrópulandi, með það að markmiði að auka færni þeirra og samkeppnisstöðu á vinnumarkaði. Öllum áhugasömum er boðið til þátttöku í fundinum.
Tilkynnt hefur verið um styrki úr Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB fyrir árið 2010. Úthlutunarnefnd ákvað að undangengnu mati sérfræðinga að styrkja þrjú verkefni en að þessu sinni bárust átta umsóknir. Heildarkostnaður vegna verkefnanna nemur um 114 milljónum króna en þar af styrkir Leonardó áætlunin 86 milljónir.
Landskrifstofur um alla Evrópu standa fyrir tengslaráðstefnum á næstu mánuðum með það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og stofnanir sem eru að reyna að ná til sömu markhópa og vilja ná fram sambærilegum árangri á tilteknu sviði. Þátttaka í tengslaráðstefnu er góð leið til að komast í samband við evrópska samstarfsaðila og til að þróa áfram hugmynd að verkefni með það að markmiði að undirbúa umsókn um Leonardo styrk sem kemur til úthlutunar árið 2011.
Okkur langar að frétta af því hvor þátttaka í Leonardo, Comeniusar eða Grundtvig verkefni ásamt dvöl eða heimsókn til Evrópu hafi skipti máli í lífi og starfi þátttakenda.
Hugmyndin er að safna saman reynslusögum þeirra sem tekið hafa þátt í mannaskiptaverkefnum Leonardo. Ekki þarf að svara í löngu máli. 5-10 línur geta komið miklu til skila.
Veittar verða viðurkenningar og verðlaun (iPod) fyrir þrjár bestu og áhrifaríkustu frásagnirnar.
Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins hefur nú úthlutað því fjármagni sem til ráðstöfunar er árið 2010 á grundvelli umsókna sem bárust 5. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 34 umsóknir þar sem sótt var um 942 þúsund evrur. Styrkupphæðinni, 433 þúsund evrum eða um 68 m.kr., var úthlutað til 21 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir samtals 199 einstaklinga.
Núna var í fyrsta sinn hægt að sækja um vottun mannaskiptaverkefna sem felur í sér vilyrði fyrir styrkveitingu næstu 4 árin. Myndlistaskólinn í Reykjavík er fyrsti aðilinn til að hljóta slíka vottun sem veitt er á grundvelli mjög góðra verkefna og vandaðrar framkvæmdar. Námsferðir til Evrópu hafa á undanförnum árum verið hluti af námi í Mótun og nemendur skólans hafa fengið þátttöku sína í slíkum verkefnum að fullu metna sem hluta af náminu. Núna er reiknað með að evrópskt samstarf verði hluti af náminu í þremur deildum skólans, í Mótun-leir og tengd efni, Teikningu og Textíl.







