Umsóknarfrestir Leonardo 2013

Yfirfærsluverkefni 31 janúar 2013
Mannaskipti 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni 21. febrúar 2013


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




NSN_smellihnappur_2.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

 

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast reynslusögur þátttakenda úr ýmsum verkefnaflokkum Leonardo.


 

Snædís Ylfa Ólfasdóttir, nemi í kjólasaum og klæðskera í Tækniskólanum sem fékk Leonardo styrk árið 2011. Hún tók hluta af sínu starfsnámi á saumastofu í Austurríki, þar sem hún vann við að sauma búninga fyrir leikhús og óperu.

Slysavarnaskóli sjómanna fékk Leonardo styrk árið 2011 til þess að heimsækja fimm sambærilega skóla í Evrópu, í Finnlandi, Bretlandi, Írlandi, Spáni og Noregi.

Helga_Aradottir_vef.jpg

„Leonardo styrkurinn, sem við fengum til fararinnar, var forsenda námsferðarinnar til Belgíu, Hollands og Bretlands“ segir Helga Aradóttir sem útskrifaðist úr dimpómanámi í Textíl frá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 2012.

Lesa meira...

Þetta var frábær lífsreynsla,“ segir Bergrún Íris Sævarsdóttir í viðtali um námsferð sem hún fór til Frakklands og Bretlands í janúar 2012 með Myndlistaskóla Reykjavíkur.

Lesa meira...

Undirrituð er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun. Ég sótti Leonardo-tengslaráðstefnu á Hótel sögu í nóvember árið 2007. Þar kviknaði, í litlum hópi kvenna, hugmynd að samstarfsverkefni sem reyndist svo of flókið í framkvæmd og ekkert varð úr því. Í kjölfarið hafði síðan samband við mig samstarfskona belgískrar konu af tengslaráðstefnunni. Þetta var Carine De Volder sem hefur umsjón með Evrópuverkefnum fyrir Het Perspectief í Ghent í Belgíu en það er stór skólastofnun sem sinnir fullorðinsfræðslu á ýmsum sviðum.

Lesa meira...

Ég lenti í Vín 4. september, frekar seint um kvöld. Helmingurinn af farangrinum mínum hafði gleymst í Kaupmannahöfn og það sprakk dekk á leigubílnum sem ég tók frá flugvellinum. Ég velti því fyrir mér hvort að þetta væri tákn um það að þessi ferð myndi ekki verða ævintýrið sem mig hafði alltaf dreymt um. En þrátt fyrir þessa smávægilegu vankanta í byrjun varð þessi ferð svo miklu meira en ég þorði nokkurn tímann að vona.

Lesa meira...

IMG_1515_minni.jpg

Síðast liðið sumar gafst mér það einstaka tækifæri að vinna í háfjallaplöntusafni í frönsku  ölpunum á vegum Grasagarðs Reykjavíkur og starfsmenntasjóðs Leonardo da Vinci. Þar sem í ár eru 30 ár liðin síðan ég hóf fyrst störf við Grasagarð Reykjavíkur upplifði ég þessa ferð sem eins konar viðurkenningu eða blóm í hnappagatið fyrir framlag mitt í þágu garðsins og varðveislu plantna bæði innlendra og erlendra.

Lesa meira...

Ég fór út til Barcelona í desember 2006 í starfsnám á vegum Leonardo starfsmenntaáætlunar Evrópu. Ég byrjaði að vinna hjá skrifstofu sem sá um að meðhöndla aðra Leonado styrkþega. Stuttu seinna færði ég mig um set og fékk starfsnám hjá fyrirtæki sem hét Cámara de Comercio de Perú en España (sá um að styrkja og auka viðskipti milli ESB og Perú).

Lesa meira...

Í marsmánuði 2010 gafst mér kostur á að fara í lærdómsríka ferð til Finnlands með útskriftarhópi Mótunarnáms Myndlistaskólans í Reykjavík.Ef ekki hefði verið fyrir Leonardo styrk þá hefði ég misst af ómetanlegri reynslu sem nýtast mun mér í formi tæknilegrar kunnáttu, innblásturs, víðsýni og skilnings. Viðkomustaðir okkar í Helsinki og nágrenni tengdust allir námi okkar í hönnun, leirmótun og mótagerð.

Lesa meira...

Hvað gerir maður í Róm? Drekkur í sig menningu og sögu, skoðar fagrar og tilkomumiklar byggingar og borðar góðan mat.

Lesa meira...

Ég hef starfað sem ferðamálafulltrúi síðastliðin 15 ár. Starfið hef ég mótað og breytt stöðugt, meðal annars með hugmyndum sem ég hef safnað í námsferðum og með þátttöku í Evrópuverkefnum

Lesa meira...