Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Erasmus  - háskólastigið

Erasmus, háskólaáætlun Evrópusambandsins, er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal háskóla í Evrópu. Áætlunin styrkir ýmis konar verkefni, svo sem stúdenta og kennaraskipti, námsferðir starfsfólks háskóla og fólks í atvinnulífinu, sameiginlegt námskeiðahald, og fleira. Þannig styður Erasmus Bologna ferlið, sem stefnir að samfelldu evrópsku háskólasamfélagi.

Veigamesti þáttur í Erasmus áætluninni er að stuðla að hreyfanleika fólks úr háskólasamfélaginu um Evrópu. Í boði eru margvíslegir styrkir til stúdenta, kennara og starfsfólks og stærri samstarfsverkefni háskóla.