Verkefni tengd tungumálum ertu sérstakt markmið í megin áætlunum menntaáætlunar ESB, Comenius, Erasmus, Grundtvig og alveg sérstaklega í Leonardo.
Markmið þveráætlunar í tungumálum er eins og nafnið gefur til kynna að ná til verkefna sem ganga þvert á mismunandi skólastig og falla því ekki alfarið undir eina af megin áætlununum. Þveráætlun um tungumál skiptist í tvo liði.
Samstarfsverkefni
Verkefnum er ætlað að efla skilning á mikilvægi tungumálanáms, margbreytileika Evrópskra tungumála, bættu aðgengi að tungumálanámi og þróun og dreifingu á efni til tungumálakennslu og til að meta tungumálafærni.
Áhersla er lögð á verkefni sem tengjast:
- Minna notuðum og kenndum tungumálum í Evrópu
- Auknum tenglum ólíkra menningarhópa í Evrópu
- Atvinnulífinu
- Þróa og miðla aðferðum til tungumálanáms með áherslu á notkun upplýsingatækni
Samstarfsnet
Samstarfsnetum er ætlað að styrkja stefnumótun í tungumálum og eftifylgni við settum markmiðum. Þeim er sérstaklega ætlað að ná til þeirra er hafa með stefnumótun að gera og fremstu fræðimanna á þessu sviði en einskorðast ekki við þennan hóp.
Áhersla er lögð á samstarf sem tengist:
- Aðferðum sem reynst hafa vil til að efla og bæta tengsl ólíkra menningarhópa í Evrópu og aukinni félagslegri þátttöku gegnum tungumálanám.
- Aðferðum sem reynst hafa vel í tungumála kennslu fyrir fólk með litla formlega menntun.
- Aðferðum sem reynst haf vel í tungumálalkennslu fyrir fólk með sérþarfir
Nánari upplýsingar er að finna a vef framkvæmdastjórnar ESB og ýtarlega upplýsingar er að finna í fylgigögnum með auglýsingu eftir styrkjum hvers árs (Call for proposals).
Dæmi um verkefni.
Hægt er að skoða lista yfir samþykkt verkefni (Key Activity 2 – Compendium) árana 2007 og 2008 á vef EACEA.
Umsjón með áætluninni
Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með þveráætlunum. Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.


