Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 

 

 

Þessi áætlun skiptist í tvö verkefni:
(a) Námsheimsóknir (áður ARION og CEDEFOP) sem hafa sérstaka síðu og síðan (b) úttektir og samanburðarrannsóknir sem gerð er grein fyrir hér.

Markmiðið er að safna saman gögnum um menntakerfið í Evrópu sem nýst geta við stefnumótun og til þess að meta hvort settum markmiðum hafi verið náð.
 

Áhersla er lögð á verkefni sem snúa að:

  • Auknum gæðum, skilvirkni og jafnrétti í ærði menntun
  • Gæðum í fullorðinsfræðslu og stjórnun og fjármögnun stofnana á því sviði
  • Grunnfærninám á leik- og grunnskólastigi
  • Gæðum og „vinsældum“ starfsnáms. Starfsnámsstefna og aukin skilningur á tengslum starfsnáms, háskólanáms og atvinnulífsins.
  • Frumkvöðlanám í skólakerfinu og mat á því hvort það skili sér út í út í atvinnulíf og samfélag.
  • Þróun nýrra leiða til að; meta nám og færni, leggja mat á framtíðar þarfir atvinnulífs og samfélags og hvort menntakerfið sé að bregðast við þörfum atvinnulífs og samfélags eftir menntun.

Nánari upplýsingar er að finna a vef framkvæmdastjórnar ESB og ýtarlega upplýsingar er að finna í fylgigögnum með auglýsingu eftir styrkjum hvers árs (Call for proposals).
Forgang hljóta þau verkefni þar sem sýnt er fram á að gögn vanti og að ekki séu aðrar sambærilegar rannsóknir í gangi.
 

Yfirlit yfir rannsóknir, úttekir

Umsjón með áætluninni

Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með þveráætlunum.  Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.