Markmiðið með starfsmenntavegabréfinu er að hvetja fólk til að fara í starfsþjálfun í öðru landi og að stuðla að því að þjálfunin sé viðurkennd á milli landa.Europass starfsmenntavegabréf er staðfesting á því að einstaklingur hafi hlotið starfsþjálfun í öðru Evrópulandi. Þeir sem fara utan til þess að afla sér menntunar og reynslu fá með starfsmenntavegabréfinu formlega viðurkenningu á dvölinni sem þeir geta notað síðar á lífsleiðinni, t.d. við umsókn um frekara nám eða starf. Því er mjög mikilvægt að það sé rétt og vel fyllt út þannig að það nýtist honum sem best að þessari þjálfun lokinni.
Europass starfsmenntavegabréfið er eina viðurkenning sinnar tegundar í Evrópu og tilraun til að auðvelda fólki að færa sig á milli hinna ólíku starfsmenntakerfa aðildarlanda verkefnisins. Europass tengist samstarfsáætlunum Evrópusambandsins, sérstaklega Leonardo da Vinci en það má einnig nýta við aðrar starfsþjálfunarleiðir eftir atvikum.
Þeim sem sækja vilja um Europass starfsmenntavegabréf er bent á að hafa samband við Europass skrifstofuna (ds@hi.is). Þeir fá þá send skjöl til útfyllingar fyrir hvern einstakling og númer fyrir hvert vegabréf.
Hverjir geta sótt um?
Stofnanir, skólar eða fyrirtæki sem senda fólk í mannaskipti og þjálfun milli landa geta sótt um starfsmenntavegabréfið fyrir þá einstaklinga sem taka þátt í mannaskiptunum, hjá skrifstofu Europass í því landi sem ferðast er frá.
Dæmi um starfsmenntavegabréfið á íslensku (.pdf, 68 kb).
CEDEFOP
Hér er slóðin inn á síðu CEDEFOP. Þar eru öll Europass skjölin vistuð á fjölmörgum tungumálum.




