Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 

 

 

Námsheimsóknir, sem starfræktar voru áður undir heitunum ARION og CEDEFOP hafa verið sameinaðar og eru nú hluti af Menntaáætlun ESB.

Námsheimsóknirnar eru ein af þveráætlun Menntaáætlunarinnar og er þeim ætlað að styðja við stefnumótun og samstarf í Evrópu með tilvísun í Lissabon ferlið, Menntun og þjálfun 2010, Bologna og Kaupmannahafnar yfirlýsingarnar.
 

Lengd heimsókna

Námsheimsóknir eru þriggja til fimm daga heimsóknir lítilla (hámark 15 manna) hópa sérfræðinga og ákvarðanatakenda frá Evrópu til tiltekins lands með það að markmiði að kynnast mennta- eða fagsviði í einu landi auk þess að stuðla að tengslamyndun þátttakenda og móttakenda.
 

Umsóknir

Árlega fá sex til tíu Íslendingar tækifæri til að taka þátt í námsheimsóknum. Frá og með árinu 2010 verða umsóknarfrestir tvisvar sinnum á ári, að vori og hausti.

Upplýsingar

Allar nánari upplýsingar og yfirlit yfir námsheimsóknir, sem í boði eru, birtast á vefsíðu CEDEFOP og þar verður einnig hægt að nálgast umsóknareyðublöð sem fylla verður út rafrænt jafnframt því að skila skal útprentuðu og undirrituðu eintaki af umsókn til landskrifstofu.