Undirbúningsstyrkir eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa Leonardo verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvægt fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram og það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna.
Þeir sem hafa áhuga á að undirbúa verkefni og verkefnaumsóknir geta sótt um undirbúningsstyrkir (preparatory visits grants) til Landskrifstofu menntaáætlunar ESB. Þeir sem hyggjast sækja tengslaráðstefnur geta sótt um undirbúningsstyrk sem og þeir sem eru að fara að hitta væntanlega samstarfsaðila. Takmarkað fjármagn er til ráðstöfunar til þessa verkefnis en reiknað er með að umsóknir séu afgreiddar á meðan fjármagn endist. Umsóknir skulu berast amk fjórum vikum fyrir áætlaða brottför.
Hámarksstyrkur er 1500 € og geta styrkirnir verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Þegar um er að ræða þátttöku á tengslaráðstefnum eru greidd ráðstefnugjöld en þegar sóttir eru fundir er greiddur uppihaldsstyrkur þar sem miðað við fjölda ferðadaga. Uppihaldsstyrkur er mishár eftir löndum og er listi yfir hámarksstyrkupphæðir hér neðst á síðunni. Ferðastyrkur er greiddur samkvæmt reikningi en athugið að hámarksstyrkur er 1500 €.
Dvalarlengd er að hámarki 5 dagar.
Eftir að heimsókninni lýkur þurfa styrkþegar að skila lokaskýrslu sem og reikningum fyrir ferðakostnaði og brottfararspjöldum.
Þegar sótt er um undirbúningsstyrk þarf að fylla út rafrænt umsóknareyðublað.
Nánari útlistun á ensku - undirbúningsheimsóknir og tengslaráðstefnur
Listi yfir hámarksgreiðslur á dag vegna uppihalds (subsistence)
| Land sem farið er til | Uppihald (án ferða) | ||
| 1 dagur | |||
| AT - Austurríki | 180 € | ||
| BE - Belgía | 170 € | ||
| BG - Búlgaría | 110 € | ||
| CH - Sviss | 220 € | ||
| CY - Kýpur | 150 € | ||
| CZ - Tékkland | 150 € | ||
| DE - Þýskaland | 160 € | ||
| DK- Danmörk | 230 € | ||
| EE - Eistland | 130 € | ||
| ES - Spánn | 180 € | ||
| FI - Finnland | 210 € | ||
| FR - Frakkland | 200 € | ||
| UK- Bretland | 230 € | ||
| EL - Grikkland | 160 € | ||
| HR - Króatía | 160 € | ||
| HU - Ungverjaland | 140 € | ||
| IE - Írland | 190 € | ||
| IS - Ísland | |||
| IT - Ítalía | 190 € | ||
| LI - Liechtenstein | 260 € | ||
| LT - Litháen | 130 € | ||
| LU - Luxemborg | 170 € | ||
| LV - Lettland | 130 € | ||
| MK - Makedónía | 0 € | ||
| MT - Malta | 140 € | ||
| NL - Holland | 180 € | ||
| NO - Noregur | 260 € | ||
| PL - Pólland | 130 € | ||
| PT - Portúgal | 150 € | ||
| RO - Rúmenía | 120 € | ||
| SE - Svíþjóð | 210 € | ||
| SI - Slóvenía | 160 € | ||
| SK - Slóvakía | 140 € | ||
| TR - Tyrkland | 140 € | ||






