Mannaskipti er samheiti fyrir starfsþjálfun og mannaskipti í Evrópu. Mannaskiptaverkefni efla hreyfanleika og styrkja fólk til að afla sér reynslu og þekkingar innan síns fagsviðs í öðrum Evrópulöndum. Starfsþjálfunina má taka sem hluta af námi, eftir að námi er lokið, eða á meðan samningi stendur. Ávinningur mannaskipta felur meðal annars í sér nýja verkfærni, tungumálaþjálfun og viðskiptasambönd til framtíðar.
Skilyrði
Samstarfsaðilar verða að vera frá tveimur löndum hið minnsta, þar af verður annað landið að vera aðili að Evrópusambandinu. Einstaklingar geta ekki sjálfir sótt um styrki, heldur þarf lögaðili, svo sem skóli, vinnustaður, stéttarfélag, eða fagfélag að ábyrgjast umsóknina.
Þátttaka
Mannaskipti eru mikilvægur hluti Leonardó áætlunarinnar og hafa fjárveitingar til þess hluta farið vaxandi. Markmið nýttrar menntaáætlunar er hvortveggja að bæta gæði og auka fjölda þátttakenda í mannaskiptaverkefnum. Á tímabilinu 2007-2013 er stefnt að því að að minnsta kosti 80.000 evrópskir einstaklingar, aðallega ungmenni, fái árlega tækifæri til starfsþjálfunar erlendis. Undanfarin ár hafa um 200 Íslendingar hlotið styrki úr Leonardó áætluninni til manna- og stafsmannaskipta árlega.
Gæði í mannaskiptum
- Mikil áhersla er lögð á gæði mannaskipta og verkefni sem skilgreina eftirfarandi atriði í umsókn fá forgang í matsferli.
- Undirbúningsnámskeið í tungumálum og menningarfærni.
- Skýr lýsing á markmiðum, innihaldi og lengd dvalar.
- Lýsing á kennslu og þjálfun og hlutverkum og ábyrgð allra hlutaðeigandi
- Mat á færni sem þátttakandi öðlast í starfsþjálfuninni.
Annað hvert ár eru gæðaviðurkenningar veittar fyrir fyrirmyndar mannaskiptaverkefni.
Heimasíða Evrópusambandsins og leiðbeiningar til umsækjenda





