Bolognaferlið
Megintilgangur Bolognaferlisins er aðmynda samevrópskt háskólasvæði þar sem hreyfanleiki nemenda og háskólafólks er auðveldaður. Af þeim markmiðum sem menntamálaráðherrar þátttökulandanna að Bolognaferlinu komu sér saman um að stefna að er áhersla á að nám á háskólastigi sé skipulagt í grunnnám og framhaldsnám, þar sem grunnnám er að lágmarki 3 ár, meistaranám 2 ár og síðan doktorsnám.
Einnig er áhersla lögð á skilvirkt innra eftirlit og mat á öllu námi til að stuðla að sem mestu samræmi milli skóla og landa. Mikið er lagt upp úr að námsmarkmið séu skýrt fram sett, þ.e. að sú þekking, geta og hæfni sé tilgreind sem nemandi á að búa yfir að námi loknu. Þetta á við um nám á fræðasviðum og einstökum námskeiðum.
Þá er stefnt að því að gera prófskírteini aðgengileg með stöðluðum skíreinisviðauka (Diploma Supplement (DS) við hefðbundin prófskírteini sem aðildarlöndin hafa samþykkt að fylgi öllum vitnisburði um nám frá og með 2005. Þar er gefin lýsing á því námi sem skírteinið vitnar um að lokið sé auk almennra upplýsinga um háskólanám í viðkomandi landi. Allir háskólar á Íslandi hafa þegar tekið upp skírteinisviðauka.
Í dag taka 46 lönd þátt í Bolognaferlinu en einnig koma ýmis fjölþjóleg samtök að ferlinu. Á tveggja ára fresti hittast menntamálaráðherrar landanna á ráðstefnum. Þar er farið yfir framvindu ferlisins og gefin út ný markmið og áherslur (Ministerial Declarations and Communiqués). Þetta eru stefnumótandi ákvarðanir sem löndin reyna síðan að vinna eftir næstu tvö árin.
Til þess að aðstoða þátttökulöndin við að ná settum markmiðum í Bolognaferlinu styrkir framkvæmdastjórn ESB verkefni Bolognasérfræðinga (Bologna Experts) í þeim löndum sem þess óska.
Bologna verkefnið á Íslandi
Ísland tekur þátt í þessu verkefni. Menntamálaráðuneytið er ábyrgðaraðili verkefnisins en það hefur falið Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins að halda utan um framkvæmd þess. Hér er lista yfir íslenska Bolognasérfræðinga og helstu verkefni hópsins tímabilið 2009-2011.
Ýtarlegar upplýsingar og tilvísanir
Á „The official Bologna Process website 2007-2010“ er að finna ýtarlegar upplýsingar um Bolognaferlið og vísanir í þau skjöl sem liggja til grundvallar ferlinu.
Á vefsíður framkvæmdastjórnar ESB er líka ýtarleg umfjöllun um Bolognaferlið og vísanir í það hvernig það tengist ýmsum öðrum áætlunum og markmiðum Evrópusambandsins eins og til dæmis Lissabon markmiðunum (Lisbon Strategy for Growth and Jobs).
Gæðaeftirlit og skilgreiningar á hæfniviðmiðum náms er sífellt að verða mikilvægari þáttur í Bologna ferlinu. ENQUA (the European Association for Quality Assurance in Higher Education) gegnir þar mikilvægu hlutverki og þar er að finna mikið af upplýsingum um gæðamál.
Íslensk viðmið um æðri menntun (National Quality Framework – NQF) voru gefin út af menntamálaráðuneytinu í febrúar 2007. Uppfærð útgáfa er væntanleg í maí 2011.



