Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Bologna_logo_f_haegri


europass_logo.jpg

euroguidance_logo.jpg

banner_vertical.gif

Velkomin á vef Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar!

Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar hefur þann megintilgang að miðla evrópskri vídd í náms og starfsráðgjöf og undirstrika mikilvægi hennar. Í þessi samhengi er náms- og starfsráðgjöf séð sem tæki til þess að auka möguleika fólks til að læra og vinna innan allra landa Evrópu og að fá hvervetna metna reynslu sína og hæfni.

Sambærilegar Evrópumiðstöðvarnar eru starfræktar í öllum ríkjum evrópska efnahagssvæðisins og mynda samstarfsnetið Euroguidance sem heldur úti upplýsingavef þar sem finna má t.d. yfirlit yfir náms- og starfsráðgjöf í flestum löndum Evrópu og rafrænt fréttabréf um nýjungar á sviði náms- og starfsráðgjafar.

Evrópumiðstöðin á Íslandi er rekin af Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands sem einnig hefur umsjón með Landsskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins ásamt Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands. Evrópumiðstöðvarnar eru skilgreindar sem viðbótarþjónusta fyrir afmarkaðan markhóp þeirrar áætlunar. Miðstöðin er styrkt af Evrópusambandinu.
 

Evrópumiðstöðin

  • er hluti í fyrirspurnakerfi allra Evrópumiðstöðvanna um nám, vinnumarkað og lífskjör í löndum evrópska efnahagssvæðisins. Þannig geta íslenskir náms- og starfsráðgjafar sent okkur fyrirspurnir um t.d. tiltekið nám og við sendum það áfram til samstarfsaðila okkar sem senda svör um hæl. Viðkomandi ráðgjafi fær svörin jafnharðan í pósti en þau eru líka sett á vefinn þannig að aðrir geti nýtt sér þau
  • veitir almennar upplýsingar um nám, vinnumarkað eða möguleika til starfsþjálfunar. Sérstök áhersla er lögð á upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf bæði hérlendis og erlends
  • sér um að bæta inn íslenskum upplýsingum um nám á háskólastigi á evrópsku Ploteus menntagáttina
  • gefur út sérstök rit sem tengjast náms- og starfsráðgjöf
  • tekur þátt í guidenet verkefninu sem er rafrænn upplýsingabanki aðila sem taka vilja þátt í samstarfsverkefnum í náms- og starfsráðgjöf á vegum Menntaáætlunar ESB
  • tekur þátt í evrópskum samstarfsverkefnum innan Leonardó da Vinci áætlunarinnar sem miða að umbótum og nýjum aðferðum á sviði starfsráðgjafar, símenntunar og þjálfunar auk evrópskrar upplýsingamiðlunar. Það stærsta þeirra er Academia mannaskiptaverkefnið sem býður nokkrum náms- og starfsráðgjöfum árlega styrki til þess að sækja námskeið í öðrum löndum Evrópu
  • tekur þátt í verkefninu eGos sem snýst um rafræna ráðgjög og hlotið hefur styrk frá ESB
  • býður upp á námskeið fyrir náms- og starfsráðgjafa um þá möguleika sem bjóðast þeim og skjólstæðingum þeirra til þess að fá styrki til náms eða sjálfboðaliðastarfa í öðrum löndum Evrópu.


Aðal markhópur Evrópumiðstöðvarinnar eru náms- og starfsráðgjafar, hvort heldur er í skólum eða á vinnumarkaði. Aðrir sem geta nýtt sér þjónustu hennar eru til dæmis mannauðsstjórar á vinnustöðum, starfsmenn upplýsingamiðstöðva, skipuleggjendur námskeiða og allir þeir sem hyggja á nám í Evrópu.
 

Verkefnisstjóri er Dóra Stefánsdóttir, Rannsóknaþjónustu HÍ

Europass skjölin

Skjölin eru á vef Europass, www.europass.is. Þetta eru fimm skírteini eða skjöl sem tengja má hvert öðru. Þau lýsa mismunandi þáttum í menntun, starfsþjálfun, starfsreynslu, tungumála- og menningarreynslu, auk óformlegri þátta eins og persónulegri hæfni einstaklings. Mappan er samhæfð fyrir öll lönd Evrópu.