Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Studentar_III

Erasmus gerir stúdentum kleift að stunda nám eða starfsnám í öðru þátttökulandi í 3-12 mánuði. Stúdentar eiga að geta flust á milli háskóla, án þess að það tefji þá í námi. Skilyrði er að háskólar skuldbindi sig til að meta nám eða starfsþjálfun stúdenta  erlendis sem hluta af námi þeirra. Þegar um starfsnám er að ræða er ekki víst að hægt sé að meta námið til eininga en þá skal tiltaka þá reynslu í skírteinisviðauka við útskrift.

Skilyrði

Til að fara í hefðbundin stúdentaskipti þarf stúdent að hafa lokið 60 ECTS einingum en það er ekki skilyrði vegna starfsnáms. Nám á öllum stigum háskólanáms er styrkt, þar með talið doktorsnám. Samstarfssamningur þarf að vera á milli háskóla vegna skiptináms (ekki vegna starfsnáms, nema hjá háskólastofnun). Styrkjunum er ætlað að koma á móts við ferða- og viðbótarkostnað sem hlýst af því að búa tímabundið erlendis. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að stúdentar haldi sínum venjulegu láns- eða styrkjamöguleikum óbreyttum.
 

Skólagjöld?

Erasmus skiptinemar greiða ekki skólagjöld í þeim skóla þar sem þeir stunda nám sem gistinemar, en greiða skóla- eða innritunargjöld við sinn heimaskóla. Um 200 íslenskir stúdentar fara árlega utan á vegum Erasmus.
 

Ávinningur stúdentaskipta

Ýmsar skýrslur og kannanir hafa leitt í ljós að tímabundið nám í ókunnu landi getur verið mjög fræðilega, persónulega og félagslega gefandi. Kynni stúdentsins af öðru landi en heimalandi sínu gerir hann færari um að aðlagast margvíslegum aðstæðum, eykur hæfni hans til að eiga samskipti við fólk af ólíkum menningarbakgrunni og veitir honum þekkingu á málefnum Evrópu. Þessi reynsla er einnig umtalsverður kostur þegar komið er út á vinnumarkaðinn.

Stúdentar geta farið í:

  • Erasmus skiptinám
  • Erasmus starfsnám
  • Erasmus hraðnámskeið

Hægt er lesa um reynslu annarra stúdenta hér. Hægt er að flokka lista eftir dálkum með því að smella efst á viðeigandi dálk. Tvísmella síðan á línu til að fá fram nánari upplýsingar.

Erasmus tungumálanámskeið:

Stúdentar á leið í skiptinám eða starfsnám geta nýtt sér Erasmus tungumálanámskeið (Erasmus Intensive Language Course, EILC) í löndum hverra tungumál eru ekki mikið notuð á alþjóðavísu (ekki enska, þýska, franska eða spænska).
Námskeiðin eru í flestum tilvikum haldin áður en almenn kennsla hefst en stundum líka samhliða námi fyrstu vikurnar.

Nánari upplýsingar á vef framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Upphæð Erasmus styrkja til stúdenta skólaárið 2011-2012

(upphæð styrkja getur breyst eitthvað á milli ára)

Skiptinám:

  • 650 € ferðastyrkur (500 € til Kaupmannahafnar og London)
  • 300 € á mánuði í uppihaldsstyrk.

Starfsnám:

  • 500 € ferðastyrkur
  • 500 € á mánuði í uppihaldsstyrk.

Hraðnámskeið

Skólinn sem heldur námskeiðið greiðir styrkinn og getur hann verið breytilegur. Styrkurinn ætti að duga fyrir ferðakostnaði og gistingu.

Styrkir hafa ekki áhrif á greiðslur frá LÍN
Hægt er að sækja um viðbótarstyrk vegna fötlunar.