Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Auk þess að styrkja stúdenta og starfsfólk háskóla til lengri eða skemmri dvalar erlendis styrkir Erasmus áætlunin einnig stærri samstarfsverkefni  evrópskra háskóla.

Sjá nánari lýsingu hverjum lið á undirsíðum.
 

Grunnskilyrði:

  • Almennt gildir að í það minnsta þrír háskólar frá sitt hvoru landinu taki þátt.
  • Mjög æskilegt er að það séu í það minnsta fjórir þátttakendur í verkefni.
     

Mögulegar styrkupphæðir og lengd verkefna:

  • Styrkir til viðamikilla samstarfsverkefna geta numið allt að 150.000 Evrum á ári. Styrkir geta í vissum tilvikum orðið hærri en eru oftast mun lægri.
  • Verkefni geta verið til allt að þriggja ára.
     

Atriði sem gott er að hafa í huga þegar sótt er um:

  • Markmið verkefnis þarf að vera mjög skýrt og tilgangur þess rökstuddur t.d. með vísun til þess sem hefur eða hefur ekki  verið gert  á viðkomandi sviði.
  • Hlutverk hvers þátttakanda þarf að vera skýrt.
  • Verkaskiptin á milli þátttakenda þarf að vera vel skilgreind og dreifast nokkuð „jafnt“ á milli þeirra. Umsókn þar sem umsækjandi sér um afgerandi hluta af vinnunni en samstarfsaðilar eru í aukahlutverkum er ekki líkleg til að fá samþykki þó svo sjálft verkefnið sé gott þar sem ekki er um virkt samstarf að ræða.
  • Huga þarf vel að kostnaðaráætlun.