Erasmus Mundus 2009-2013
Erasmus Mundus áætluninni er ætlað að bæta gæði háskólanáms í Evrópu og efla tengsl við lönd utan Evrópu.
Takmarkið er að Evrópusambandslöndin verði eftirsóttur áfangastaður fólks sem sækist eftir hágæða námi og námsumhverfi.
Áætlunin skiptist í þrjár aðgerðir (Actions)
-
Aðgerð 1 – Erasmus Mundus meistara og doktorsnám. Samstarfs minnst þriggja evrópskra háskóla.
-
Aðgerð 2 – Samstarf við háskóla utan Evrópu. Samstarf minnst fimm evrópskra háskóla. Vinsamlegast athugið að íslenskar stofnanir geta ekki tekið þátt í Aðgerð 2.
-
Aðgerð 3 – Kynning á evrópska háskólasvæðinu. Samstarfs minnst þriggja evrópskra háskóla.
Upphæð til ráðstöfunar tímabilið 2009-2013
Samþykkt var í Decision No 1298/2008/EC að veita 470 milljónum Evra í aðgerðir 1 & 2 tímabilið 2009-2013. Áætlað er að 460 milljónir Evra fari í aðgerð 2. Í heildina er því um að ræða tæplega einn milljarð Evra.
Umsjón með áætluninni
Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með Erasmus Mundus. Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.


