Upplýsingar á vef ESB 

 

Upplýsingar á vef EACEA 

 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

Miðstýrð þróunar- og yfirfærsluverkefni í Comenius

„Miðstýrt“ vísar til þess að umsjón með þessum verkefnum er í höndum framkvæmdastjórnar ESB en ekki Landskrifstofu.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum og aðstoða umsækjendur eins og hægt er.

Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) að sjá um framkvæmd miðstýrðra áætlana.
 

Markmið

Markmið þróunar- og yfirfærsluverkefna í Comenius eru að bæta kennaramenntun, auka færni fólks sem starfar á sviði menntunar og gæði skólastarfs almennt.

Sérstök áhersla er lögð á eftirtalin atriði:

  • Eflingu námsáhuga
  • Þróun kennsluaðferða
  • Skólastjórnun
  • Tungumálakennslu
  • Lestrarkennslu
  • Rafrænar kennsluaðferðir

Hægt er að nálgast ítarlegri lýsingu og hverju áherslu atriði í „Call for proposal“, sjá bls 8 & 9.

Nánari útlistun á ensku - marghliða net (.pdf, 62 kb)

Nánari útlistun á ensku - marghliða verkefni (.pdf, 63 kb)

Nánari útlistun á ensku - stoðverkefni (.pdf, 63 kb)
 

Umsóknir og eyðublöð

Umsóknir og eyðublöð fyrir þessar áætlanir er að finna á vef EACEA.
Sjá undir liðnum „Information for applicants“ og velja síðan viðeigandi ár.
Athugið að umsóknarform eru ekki endilega aðgengileg með löngum fyrivara.
Yfirlit yfir næstu umsóknarfresti í vísanir í nýjustu útgáfur og fylgiskjöl við „call for proposals“ er hægt að nálgast hér.

 

Passar verkefnishugmynd þín ekki að þessum áhersluatriðum?

Ef verkefnishugmynd passar ekki að þessum áhersluatriðum gæti hún fallið að markmiðum einnar af þveráætlununum sem ná til allra skólastiga, en þær eru:

Hægt er að nálgast ýtarlegri lýsingu á hverri áætlun á undirsíðu hverrar ætlunar (tenglar hér að ofan) og líka í „Call for proposals“, sjá bls 27-34.