|
Akademia er mannaskiptaverkefni liðlega 20 landa sem fjármagnað er með styrkjum frá Leonardó da Vinci áætlun Evrópusambandsins.
Markmiðið er að auðvelda náms- og starfsráðgjöfum að fara í stuttar námsferðir til annarra Evrópulanda til að fræðast þar um skipulagningu menntakerfis eða fyrirkomulag á vinnumarkaði.
Heimsóknirnar eru skipulagðar þannig að hvert þátttökuland skipuleggur námskeið sem að öllu jöfnu stendur yfir í viku til tíu daga. Þar er gefið yfirlit yfir samfélag og opinbert kerfi viðkomandi lands og farið er í heimsóknir til stofnana og fyrirtækja þar sem ráðgjafar starfa. Einnig eru oft tekin fyrir ákveðin þemu sem eru mikilvæg í faglegri umræðu um ráðgjöf.
Á undanförnum árum hafa margir íslenskir ráðgjafar farið í slíkar heimsóknir til annarra landa á vegum Academia og gert er ráð fyrir að sjö ráðgjafar fari árin 2010 og 2011. Þá er von á 10-15 erlendum ráðgjöf árlega í heimsókn til Íslands á sama tímabili.
Þátttaka í Academia skapar afar mikilvæg tækifæri fyrir íslenska ráðgjafa til að kynnast því sem best er gert erlendis og miðla af þeirri reynslu sem þeir hafa öðlast hér heima í störfum sínum. Academia verkefnið skapar því á hverju ári mikilvægan vettvang fyrir umtalsverða miðlun reynslu og þekkingar á milli íslenskra og erlendra ráðgjafa.
Samskiptavefur verkefnisins
|