Hér fyrir neðan verður hægt að sækja rafræn umsóknareyðublöð fyrir 2013. Einnig er þar hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu eyðublaðsins. Mikilvægt er að vista eyðublaðið strax í tölvunni ykkar áður en þið farið að fylla inn í það. Umsókn á að fylla út á ensku nema, einstaklingsstyrkir/endurmenntun hana má fylla út á íslensku.
Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær þarf líka að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests. Póststimpill gildir.
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Comenius
Tæknigarði, Dunhaga 5
107 Reykjavík
ATH! - Við lok ferðar ber að skila inn lokaskýrslu sem ykkur er send með tölvupósti. Með skýrslunni þarf að fylgja afrit af farseðli og kvittun fyrir námskeiðsgjaldi.
Sjá frekari leiðbeiningar um rafræna umsóknareyðublaðið hér fyrir neðan.
Umsóknir og eyðublöð 2012-2013
| Áætlun | Umsóknareyðblað | Skýrslur | Leiðbeiningar |
|---|---|---|---|
| Endurmenntun |
|
Landskrifstofa sendir styrkþegi tengil í lokaskýrslu |
|
| Fara sem aðstoðarkennari |
|
Lokaskýrsla aðstoðarkennari (.word, 84k) | |
| Fá aðstoðarkennara |
Leiðbeiningar fyrir rafræn umsóknareyðublöð
Vinsamlegast byrjið á því að sækja ykkur handbókina fyrir rafræna umsóknareyðublaðið (hér fyrir ofan) og lesa ykkur til um helstu atriði, áður en þið hefjist handa við að vinna með umsóknareyðublaðið. Rafræna umsóknareyðublaðið er pdf-skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader.
Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum til þess að senda inn gilda umsókn:
-
Vista rafræna umsóknareyðublaðið í tölvunni sem PDF skjal. Loka vafraglugganum. Opna umsóknareyðublaðið í tölvunni og hefjast handa við að fylla út í reitina.
-
Ganga úr skugga um að allir skyldureitir séu útfylltir. Skyldureitir sem þarf að fylla út eru merktir með rauðu. Til að ganga úr skugga um að allir skyldureitir hafi verið fylltur út, þarf að smella á Validate-hnappinn.
-
Reikna út fjárhagsupplýsingar (smellt á „Calculate“-hnappinn). Tölva þarf að vera nettengd á meðan á útreikningi stendur.
-
Senda inn rafrænt afrit umsóknarinnar. Smelltu á hnappinn „Submit online“-hnappinn. Ef sendingin heppnast, sérðu „Submission Status: OK“ undir fyrirsögninni „Submission Summary“ Ef rafræn sendingin heppnast ekki, smellið á hnappinn "Create email attachment" til að senda landskrifstofu rafræna afritið af umsókninni í tölvupósti. Ef það gengur ekki, vinsamlegast hafið samband við Landskrifstofu.
-
Prentið út umsóknina (smellið á „Print form“-hnappinn).
-
Undirritið/látið undirrita umsóknina (ath. aðeins sá sem má skuldbinda stofnunina má undirrita umsókn).
- Sendið umsóknina til Landskrifstofu í pósti fyrir lok umsóknarfrest (póststimpill gildir). Ath. það er hið útprentaða eintak umsóknarinnar sem er hin gilda umsókn.
Leiðbeiningar fyrir skýrslugerð
Endurmenntun kennara
Styrkhafi skal skila lokaskýrslu um endurmenntunarnámskeið innan fjögurra vikna frá því að heim er komið. Athugið: Lokaskýrsluform verður sent til þátttakenda í tölvupósti.
Með skýrslunni þarf að senda inn frumrit af flugmiða og öðrum farseðlum/kvittunum sem tengjast ferðakostnaði. Það þarf ekki að framvísa reikningum vegna uppihaldskostnaðar erlendis. Styrkur vegna uppihaldsskostnaðar kennara hjá Landsskrifstofu Menntaáætlunar ESB á Íslandi hefur verið á bilinu 50% – 75% af uppihaldstaxta Evrópusambandsins samanber töflur aftast í umsókn.
Fara sem aðstoðarkennari
Eftir heimkomu þarf að skila inn öllum ferðakvittunum til Landsskrifstofu, svara „evaluation“ spurningalistanum og taka saman stutta reynslusögu um dvölina.
Töflur vegna uppihaldstaxta
Hér má finna töflur sem gefnar eru út af Evrópusambandinu yfir hámarksstyrk til uppihalds. Til uppihalds telst kostnaður vegna gistingar, fæðu og ferða meðan á dvöl stendur. Ekki þarf að skila kvittunum vegna uppihaldskostnaðar. Vinsamlegast athugið að ártalið í töflunum vísar til þess árs sem sótt var um styrk, ekki hvenær ferðin var farin.



