Almennt markmið Comenius áætlunarinnar er að allir nemendur fái gæðamenntun sem hjálpi þeim við að takast á við verkefni í alþjóðlegu og síbreytilegu þjóðfélagi.
Europe 2020
Árið 2010 var kynnt ný stefnuáætlun Evrópusambandsins sem ber heitið Europe 2020 - A European Strategy for smart, sustainable and inclusive growth. Áætlunin kveður m.a. á um helstu markmið Evrópusambandsins á sviði menntamála til ársins 2020. Ber þar hæst að nefna að ná brottfalli nema á grunnstigum skólakerfisins undir 10% og ná hlutfalli ungs fólks með framhaldsmenntun upp í 40%. Jafnframt er tilgreindur fjöldi annarra tillagna er miða að því að auka gæði menntunar í Evrópu og gildi hennar og hagnýtingu fyrir atvinnulífið. Í því samhengi er sérstaklega minnst á mikilvægi þess að viðhalda því góða samstarfi sem á sér stað í gegnum menntaáætlun Evrópusambandsins.
Evrópsk samvinna í verki
- Allir nemendur fái tækifæri til að þróa með sér grunnfærni
- Færni í móðurmáli
- Færni í erlendum tungumálum
- Færni í stærðfræði og grunnfærni í tækni og vísindum
- Færni í tölvulæsi
- Færni í mennta sig
- Félagslega og borgaralega færni
- Frumkvæði og framkvæmdahæfni
- Menningarlegt læsi og tjáningarhæfleika
- Bjóða upp á hágæða nám fyrir alla nemendur. Það felur í sér að samhæfa menntun þannig að jafnræði gildi í skólakerfinu.
- Draga úr brottfalli nemenda og betrumbæta stuðning í sérkennslu.
- Bæta gæði kennaramenntunar og annarra sem starfa við skóla.
Sértæk markmið Comenius
- að þróa þekkingu og skilnings á meðal ungs fólks og kennara á mismunandi menningu og tungumála í Evrópu
- aðstoða ungt fólk að öðlast grunnfærni í lífinu og nauðsynlegrar hæfni sem starfskraftar framtíðarinnar
Framkvæmdamarkmið Comenius
- Að auka möguleika á auknum námsferðum nemenda og kennara í Evrópu
- Aðstoða nemendur að tileinka sér grunnfærni og persónulega hæfni og stefnt er a.m.k. 3 milljónum nemenda í evrópskum samstarfsverkefnum skóla
- Að hvetja til tungumálalærdóms
- Að styrkja þróun og nýjungar í tölvumenntun,
- Að koma á Evrópuvitund í kennaramenntun
- Að styrkja umbætur og kennslufræðilega nálgun í skólastjórnun



