Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til næstu þriggja ára í menntaáætlun Evrópusambandsins (Lifelong Learning Programme - LLP). Um er að ræða alla flokka styrkja úr öllum undiráætlununum – Comenius, Leonardo, Erasmus, Grundtvig, þveráætlunum, þar með töldum námsheimsóknum fyrir stjórnendur og stefnumótendur í menntamálum (áður Arion og Cedefop) og Jean Monet. Auglýsingin er mjög ítarleg þar sem tilgreind eru forgangsatriði næstu þriggja ára almennt og fyrir hverja undiráætlun. Þá vísar auglýsingin einnig í leiðbeiningar fyrir umsækjendur.
Á heimasíðu Evrópusambandsins er auglýsingin í heild sinni „General Call for Proposals 2010“ og varðar hún eins og áður segir alla menntaáætlunina. Slóðin er http://ec.europa.eu/education/llp/doc848_en.htm.
Auglýsingin er í eftirfarandi liðum:
-
Official announcement of the Call for Proposals (.pdf, 707 kb)
Opinber auglýsing -
Strategic priorities (.pdf, 184 kb)
Fjallað er um innihaldshluta umsókna, forgangs- og áhersluatriði Menntaáætlunarinnar í heild sinni sem og fyrir hverja undiráætlun fyrir sig. -
Lifelong Learning Programme Guide - Part I – General Provisions (.pdf, 607 kb)
Almenn lýsing á áætluninni og þeim reglum sem gilda, t.d. varðandi fjármál. -
Lifelong Learning Programme Guide - Part IIa – Sub-Programmes and Actions (.pdf, 213 kb)
Almenn lýsing á hverri undiráætlun -
Lifelong Learning Programme Guide - Part IIb – Explanations on the Action (.pdf, 1066 kb)
Sértæk lýsing á hverri undiráætlun.



