Umsóknarfrestir Comenius 2012

Endurmenntun,
16. jan, 30 apríl, 17 sept
Aðstoðakennarar, 31. jan
Samstarfsverkefni 21. feb
Svæðasamstarf, 21. feb
Nemendaskipti, 1 des


Comenius bæklingur




Upplýsingar á vef EACEA


 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

Samstarfsverkefni á milli skóla í gegnum eTwinning er einn helsti liður þessarar einföldu áætlunar. Ýmist geta kennarar stofnað til samstarfs, t.d. með því að senda álitlegum samstarfsaðila tilboð um verkefni (sem er gert nánast með einum músarsmelli), eða að þeim er boðið að taka þátt í verkefni sem þegar er komið á laggirnar.

Upplýsingar um stofnun verkefna er að finna undir Skrá kennara eða samstarf.
 

Verkefni sem íslenskir skólar taka þátt í

Upplýsingar um verkefni sem íslenskir skólar taka þátt í er að finna á stikunni til vinstri. Verkefnin eru flokkuð eftir skólastigum: framhaldsskólastig, grunnskólastig og leikskólastig (þessi flokkun er ekki algild þar sem verkefni geta verið á milli skólastiga). Þau eru einning flokkuð eftir því hvort að þau eru virk eða þeim hefur verið lokið. Verkefni bætast við allt skólaárið -- stofndagsetning verkefnis er skáletruð fyrir aftan heiti verkefnis. Athugið að verkefni geta spannað lengri eða skemmri tíma, jafnvel fleiri skólaár.

Í hverju verkefni eru stofnendur ávallt tveir. Hér er hins vegar eingöngu um tæknilegt atriði að ræða. Stofnskólarnir geta boðið fleirum að taka þátt á jafnréttisgrundvelli sé viljinn er fyrir hendi. Eins geta skólar óskað eftir inngöngu í verkefni sem þegar eru komin á laggirnar. Þetta er opið og undir kennurunum sjálfum komið.
 

Hugmyndir að verkefnum

Á aðalsíðu eTwinning er hægt að nálgast tilbúnar hugmyndir að verkefnum í ýmsum kennslugreinum sem mistöð eTwinning og kennarar víða úr álfunni hafa sett saman. Hver "hugmyndapakki" tengist ákveðnu viðfangsefni og markhópi. Jafnframt er fjallað um markmið og kennslufræðilegt gildi.

Hægt er að nota hugmyndirnar beint eða laga þær að eigin þörfum, bæta og breyta, eftir því sem við á.

Tengill á hugmyndapakka eTwinning