Flataskóli sigraði Schoolovision 2010 - söngvakeppni 34 skóla í Evrópu. Þetta er annað árið sem Flataskóli tekur þátt í þessu skemmtilega eTwinning-verkefni.
Ykkur stendur til boða að lýsa áhuga ykkar til 15. Maí 2010. Miðstöð eTwinning í Evrópu mun síðan velja úr kennara sem síðan skila inn sínu framlagi til bókarinnar. Fyrirfram þakkir fyrir stuðninginn – við hlökkum til að heyra í ykkur.
Fulltrúi Íslands í Schoolovision! tók ásamt samstarfsfólki á móti Evrópuverðlaunum eTwinning í sínum flokki.
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.
Dönsk kennslumyndbönd um eTwinning - bæði desktop og TwinSpace
Á þriðja tug tungumála- og félagsgreinakennara allstaðar að af norðurlöndunum hafa fræðst um eTwinning, notkun stuttmynda í kennslu, og síðast en ekki síst, hafa skrifað handrit, tekið upp, og klippt eigin stuttmyndir.
Fyrir skemmstu stóð landskrifstofan fyrir byrjendanámskeiði í eTwinning fyrir leikskólakennara þar sem farið var í grundvallaratriði eTwinning.
10. júní 2008, Háskólatorgi (við hliðina á aðalbyggingu HÍ)
Notkun stuttmynda í kennslu samfélagsfræði og norræna mála í samhengi eTwinning. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí næstkomandi. Umsóknir verða metnar í byrjun júní og svör sendar út fyrir miðjan júní.
SAFT verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB. Samningsaðili við ESB er Heimili og skóli - landssamtök foreldra, sem sér um að annast útfærslu og framkvæmd verkefnisins að öllu leyti fyrir Íslands hönd.
Á eTwinning-málstofur (Professional Development Workshop) kemur fjöldi kennara víðsvegar að úr Evrópu.
SAFT, vakningarátak Heimilis og skóla um örugga og jákvæða notkun nets og annarra miðla, stendur í samstarfi við INSAFE, evrópska samstarfsnetið um örugga netnotkun, fyrir spurningakeppni meðal 10-15 ára nemenda í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum sem haldinn verður hátíðlegur í 50 löndum þann 10. febrúar 2009.
Dregið var úr öðrum lukkupotti af tveimur, þ.e. nöfn kennarar sem skráðu sig í samstarfsverkefni -- vinningurinn var helgarferð til Prag á árlega stórhátíð eTwinning sem haldin verður í febrúar.
Verðlaunin voru veitt á haustfagnaði eTwinning í Iðnó, 3. október.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð og stutta dagskráin sem mun standa á milli 12:00 og 14:30. Veitt verða verðlaun í flokkum leik- og grunnskóla.
Veitt verða verðlaun í landskeppni eTwinning fyrir síðasta skólaár eftir léttan hádegisverð og stutta dagskrá.



