Umsóknarfrestir Comenius 2012

Endurmenntun,
16. jan, 30 apríl, 17 sept
Aðstoðakennarar, 31. jan
Samstarfsverkefni 21. feb
Svæðasamstarf, 21. feb
Nemendaskipti, 1 des


Comenius bæklingur




Upplýsingar á vef EACEA


 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

eTwinning gefur kennurum færi á að sækja viðburði víðsvegar um Evrópu á hverju skólaári.
 

Vinnustofur

Árlega eru haldnar vinnustofur (professional development workshops) víðsvegar um Evrópu sem eiga að gefa kennurum eða öðrum sem starfa að skólamálum tækifæri til starfsþjálfunar eða endurmenntunar á sviði rafrænnar menntunar (Professional Development Workshops). Málstofurnar eru einnig tengslaráðstefnur og því góður vettvangur til þess að koma samstarfi á laggirnar.

Þrátt fyrir að vinnustofurnar séu fyrst og fremst ætlaðar kennurum og skólastjórnendum eru inn á milli vinnustofur ætlaðir öðrum sem starfa að skólamálum, t.d. fræðslustjórum og starfsfólki skólaskrifstofa.

Landskrifstofan getur boðið takmörkuðum fjölda á vinnustofur á hverju skólaári og auglýsir eftir umsóknum áhugasamra. Það fer eftir hverri vinnustofu fyrir sig hvort hún miðast við byrjendur eða lengra komna.

Frekari upplýsingar á stikunni til vinstri.
 

Hin árlega eTwinningráðstefna

Árlega er haldin stór ráðstefna á vegum eTwinning í Evrópu en fór sú fyrsta fram í byrjun árs 2005. Frítt föruneyti íslenskra kennara ásamt starfsfólki Landskrifstofunnar hefur tekið þátt í hverri ráðstefnu við góðan orðstír. Fjöldi kennara takamarkast við fjóra til fimm og er að öllu jöfnu lögð áhersla á þá sem eru með reynslu af eTwinning.

Frekari upplýsingar á stikunni til vinstri.
 

Aðrir viðburðir

Öðru hverju gefst Landskrifstofunni færi á að bjóða kennurum á aðra viðburði, t.d. verðlaunahátíðir eða ráðstefnur á vegum annarra landskrifstofa. Metið er í hverju tilfelli fyrir sig hverjum er boðið. Vorið 2007 fóru tveir kennarar ásamt fulltrúa landskrifstofunnar á eTwinninghátíð á Möltu.