Umsóknarfrestir Comenius 2012

Endurmenntun,
16. jan, 30 apríl, 17 sept
Aðstoðakennarar, 31. jan
Samstarfsverkefni 21. feb
Svæðasamstarf, 21. feb
Nemendaskipti, 1 des


Comenius bæklingur




Upplýsingar á vef EACEA


 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

eTwinning í stuttu máli:

  • eTwinning býður endurgjaldslaust upp á stuðning, rafræn verkfæri og þjónustu til þess að skólar geti stofnað til samstarfs í lengri eða skemmri tíma á sem einfaldastan hátt.
  • Skráningu kennara og skóla fylgir aðgangur að eigin vefsvæði þar sem auðvelt er að finna samstarfsaðila
  • eTwinning verkefni eru unnin af tveimur eða fleiri kennurum frá mismunandi Evrópulöndum. Verkefni geta verið hvernig sem er, stór eða smá, til lengri eða skemmri tíma, svo framarlega að þau falli að kennsluskrá og uppeldismarkmiðum hvers skóla.
  • TwinSpace er einskonar rafræn kennslustofa sem auðveldar verkefnavinnuna og allt utanumhald. TwinSpace er öruggt svæði þar sem einungis viðkomandi nemendur og kennarar hafa aðgang.
  • Allar kennslugreinar eru gjaldgengar í eTwinning.
  • Frír aðgangur að veftækjum ýmiskonar fylgir þátttöku í eTwinning.
  • Sveigjanleiki í fyrirrúmi! Engir umsóknarfrestir, engar skýrslur og (nánast) engar reglur. Einkunnarorð eTwinning eru: hafið það lítið og einfalt (KISS – Keep it Small and Simple).

Leiðbeiningar á íslensku

Almennar leiðbeiningar um eTwinning-kerfið, leit að samstarfsaðila, þátttöku í verkefnum, o.s.frv. er hægt að hlaða niður hérna. Leiðbeiningarnar voru þýddar að Dögg Láru Sigurgeirsdóttur og  Björgvin Ívari Guðbrandssyni, kennurum við Langholtsskóla.

eTwinning almennar Leiðbeiningar (.pdf, 1470kb)

Samstarf skóla

Samstarf skólanna getur farið fram á ýmsa vegu, allt frá því að vera einungis í formi upplýsinga eða heimilda, sameiginlegra rannsóknarverkefna eða sem fastur hluti námsskrár. Hægt er að byggja á þeirri reynslu sem margir skólar hafa þegar aflað sér með þátttöku í Sókrates- og Leonardo da Vinciáætlununum. Þátttaka í eTwinning auðveldar einnig aðgengi að öðrum þáttum Menntaáætlunar Evrópusambandsins (Lifelong Learning Program, LLP).

Sífellt fleiri skólar á Íslandi og í Evrópu hafa tekið þátt í samstarfsverkefnum Evrópusambandsins. Í október 2010 voru yfir 107.000 virkir þátttakendur skráðir í eTwinning.
 

Bestu verkefnin fá heiðursverðlaun

Engir styrkir eru veittir þeim skólum sem taka þátt en nokkur bestu verkefnin fá sérstök heiðursverðlaun fyrir nýsköpun og gæði. Sem dæmi má geta þess að fyrstu verðlaun í eTwinning fyrir 2005 er ferð kennara og nemenda til Kanaríeyja í eina viku með glæsilegri dagskrá.

Á móti kemur að eTwinning er sveigjanleg áætlun -- engir umsóknarfrestir, engar skýrslur, og (nánast) engar reglur (umfram það að verkefni falli að kennsluskrá og uppeldismarkmiðum hvers skóla). Einkunnarorð eTwinning eru:

KISS - Keep it Small and Simple!

Upplýsingar

Upplýsingar um skráningu kennara og skóla er að finna á stikunni til vinstri undir Skrá kennara eða samstarf.

Nánari upplýsingar veitir fulltrúi eTwinning hjá Alþjóðaskristofunni, Guðmundur Ingi Markússon. Sími: 525 5854. Netfang: gim@hi.is.