Ímynd og aðgengi evrópska háskólasvæðisins
Markmiðið með „Aðgerð 3“ í Erasmus Mundus er að styrkja evrópska háskólasvæðið sem spennandi valkost á heimsvísu. Bæta ímynd þess. Auka sýnileika þess og gera það aðgengilegra fyrir stúdenta utan Evrópu.
Verkefni geta verið mjög margbreytileg. Geta t.d. falist í ýmiskonar kynningarviðburðum og útgáfu á kynningarefni, ráðstefnum, úttektum og samanburðar rannsóknum og öðru sem styður markmið áætlunarinnar.
Almennum verkefnum í áætluninni er skipt í tvo liði:
- Verkefni sem eiga að styrkja evrópskra háskólasvæðið sem spennandi valkost.
Umsækjendur verða að vera frá minnst þremur Evrópulöndum og tveimur löndum utan Evrópu. - Verkefni sem fela í sér alþjóðavæðingu Erasmus-þemaneta sem eru stór fagnet evrópskra háskóla.
Dæmi: „CLIOHnet2“ sagnfræðinetið þar sem Háskóli Íslands hefur verið mjög virkur þátttakandi. Netið fékk verðlaun árið 2009 sem fyrirmyndar Erasmus verkefni. Flestir íslensku háskólanna eru í einhverjum Erasmus þemanetum.
Umsækjendur verða að vera frá minnst 16 löndum og þarf af frá minnst 10 löndum utan Evrópu.
Styrkupphæðir
Styrkupphæðir eru mjög breytilegar eftir eðli og umfangi verkefna.
Sértækir styrkir
Í áætluninni eru líka sértæk kynningarverkefni á vegum landskrifstofa Erasmus Mundus og sértækur styrkur til félags fyrrverandi og núverandi Erasmus Mundus stúdenta (Erasmus Mundus Students and Alumni Association).
Tímabilið 2004-2008 voru líka veittir sértækir styrkir í;
Upplýsingar
Hægt er að skoða lista yfir samþykkt verkefnið tímabilið 2004-2008 (pdf-skjal) til að fá nánari hugmynd um eðili þessara verkefna.
Ítarlegar upplýsingar er að finna í „Erasmus Mundus 2009-2013 - Programme Guide“ en jafnframt er nauðsynlegt að lesa „ Call for Proposals“ fyrir hvert ár samhliða.


