Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Sameiginlegt nám á meistara og doktorsstigi

Sameiginlegt hágæða nám á meistara- og doktorsstigi er grunnurinn í Erasmus Mundus áætluninni. Minnsta þrír evrópskir háskólar þurfa að bjóða sameiginlega upp á framúrskarandi námsleið til að hún geti orðið að Erasmus Mundus námi. Háskólar utan Evrópu geta verið formlegur aðili að náminu.

Háskólarnir þurfa að sýna fram á að með því að bjóða sameiginlega upp á námið náist fram aukin gæði sem ekki væru til staðar hjá hverjum og einum.

Stúdentar verða að leggja stund á nám og/eða rannsóknir við minnst tvo á háskólunum sem bjóða námið.

„Aðgerð 1“ veitir styrki í eftirfarandi liði:

  • Umsýslukosnað háskólanna við að reka sameiginlegt nám. Allt að 30.000 € fyrir meistaranám og 50.000 € fyrir doktorsnám. Að auki fylgir hverjum stúdent sem fær styrk til að sækja námið nokkuð há upphæð vegna þátttökukostnaðar (skólagjöld, umsýsla, tryggingarkostnaður, etc)
  • Námsstyrki til stúdenta. Áhersla er lögð á styrki til stúdenta frá löndum utan Evrópu en evrópskir stúdentar geta líka sótt um styrk. Styrkir til stúdenta utan Evrópu eru að jafnaði helmingi hærri en styrkir til evrópskra stúdenta. Upphæð styrksins ræðst af lengd námsins en getur verið á bilinu 24.000 – 48.000 € fyrir stúdent í meistaranámi utan Evrópu (ferða og uppihaldskostnaður stúdents, skólagjöld og annar umsýslukostnaður). Styrkir til doktorsnáms eru ennþá hærri og geta í vissum tilvikum farið yfir 100.000 € fyrir allt námstímabilið fyrir hvern stúdent.
  • Styrkir til fræðimanna sem koma að sameiginlegu meistaranámi. Styrkir til fræðimanna utan Evrópu til að koma þangað og styrkir til Evrópskra fræðimanna til að fara til samstarfsskóla utan Evrópu. Miðað er við 1.200 € á viku í allt þrjá mánuði. Hámarksstyrkur er 14.800 €.

Ítarlegar upplýsingar er að finna í „Erasmus Mundus 2009-2013 - Programme Guide“ en jafnframt er nauðsynlegt að lesa „Call for Proposals“ fyrir hvert ár samhliða.