Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Kennarar sækja um Erasmus styrk til síns heimaskóla.

Háskólarnir fá styrkúthlutun frá landskrifstofu og miðla síðan styrkjum áfram til sinna stúdenta.
 

Skilyrði

Gestaskólinn þarf að vera samstarfsskóli heimaskóla (gildandi Erasmus tvíhliðasamningur á milli skólanna). Auðvelt er að koma á fót Erasmus samningi milli skóla sé vilji til þess á báðum stöðum. Alþjóðafulltrúar skólanna geta veitt aðstoð við að ganga frá þeim (um er að ræða staðlað eyðublað, sjá meðfylgjandi skjal).

Á heimasíðu hvers skóla er hægt að nálgast upplýsingar samstarfsskóla og aðrar sértækar upplýsingar.

Ekki er skilyrði að um gagnkvæm skipti sé að ræða en það styrkir umsókn mikið ef hægt er að sína fram á að um skipulagt og gagnkvæmt samstarf sé að ræða.

Ekki er nein lágmarksdvöl vegna kennaraskipta en aðkoma að kennslu verður að vera í það minnsta 5 tímar. Hámarksdvöl er 6 vikur.
 

Umsóknarfrestir

  • Fyrsti frestur er 15. maí.

  • Annar frestur frestur er 15. október (ef ennþá eru til styrkir)

Hægt er að sækja um eftir að frestur er liðinn og vera á biðilsta eftir styrk. Nokkuð algengt er að fresta eða sleppa þurfi áður samþykktum skiptum.

Umsóknum er skilað til alþjóðaskrifstofu heimskóla.
 

Með umsókn þarf að skila:

  • Boðsbréfi frá gestaskóla. Má vera tölvupóstur og þarf ekki að segja annað en að viðkomandi sé boðið að koma sem „Erasmus visiting teacher“ til gestaskólans tímabilið X sem ekki þarf að skilgreina nákvæmlega (t.d. „one week in April or May).
  • Kennsluáætlun (Teaching Programme) (doc. 84 kb). Í kennsluáætluninni er gert grein fyrir markmiðum og fyrirkomulagi gestakennslunnar. Það er samkomulagsatriði milli kennara og gestaskóla hver sér um að ganga frá skjalinu (aðal atriðið er að það sé skýrt hvað á að gera á meðan dvöl stendur – þarf als ekki að vera langur texti). Alþjóðafulltrúar geta veit aðstoð ef með þarf. Æskilegast er að kennsluáætlun sé skilað með umsókn (styrkir umsókn) en sé það ekki hægt má gera það síðar með samþykki alþjóðafulltrúa.
  • Afriti af bókun flugmiða þar sem verð kemur fram. Ekki þarf að skila inn flugmiða fyrr en umsækjandi er búinn að fá vilyrði fyrir styrk. Ef tekin er lest í stað tengiflugs fellur það undir ferðakostnað (oftast miðað við áætlað verð lestarmiða nema bókað sé fyrirfram).
     

Svar við umsókn

  • Svar við umsókn um styrk ætti að liggja fyrir fljótlega eftir umsóknarfrest (1-3 vikur).
  • Umsókn er samþykkt með fyrirvara ef kennsluáætlun fylgir ekki með.
  • Ef tímasetning samþykktra kennaraskipta breytist og er í óvissu getur kennari sótt um halda umsókn opinni en skólinn getur einnig áskilið sér þann rétt að ráðstafa styrknum annað.
     

Samningur og fyrri greiðsla styrks

  • Áður en kennari fer utan er gengið frá samningi vegna styrksins á milli kennara og heimaskóla.
  • Kennari fær 80% af styrknum fyrir brottför.
     

Upphæð styrks skólaárið 2011-2012 (getur breyst á milli ára)

  • Ferðakostnaður allt að 1000 € 
  • Dagpeningar á bilinu 120-57 Evrur á dag (fer eftir lengd dvalar og lækka eftir því sem dvöl er lengri – sjá skjal hér að neðan).
  • Heildarstyrkur getur ekki orðið hærri en 2000 €
     

Uppgjör og seinni greiðsla styrks

  • Að dvöl lokinni þarf kennari  að fylla út rafræna lokaskýrslu.
  • Kennari fær 20% af styrknum eftir að lokaskýrsla hefur verið móttekinn.
     

Erasmus kennara- og starfsmannaskipti - umsókn fyrir skólaárið 2011-2012

Hægt að nálgast umsóknina á heimasíðum hvers háskóla.

Um er að ræða sama umsóknarform þó svo það sé birt á fleiri en einum stað.