Styrkupphæðinni, 393 þúsund evrum var úthlutað til 20 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir samtals 180 einstaklinga. Frá upphafi áætlunarinnar hafa nú um 2800 Íslendingar fengið styrk til starfsþjálfunar og til að kynna sér ýmsar greinar starfsmenntunar í Evrópu. Sífellt fleiri sækja um styrk, en í ár var sótt um 1.3 milljónir evra sem er talsvert hærri upphæð en sótt hefur verið um áður.
Lesa meira...
Fjölmargar umsóknir bárust um styrki fyrir samstarfsverkefni og yfirfærsluverkefni árið 2011 sem bera vitni um þá miklu grósku sem ríkir í málefnum starfsmenntunar. Niðurstöður úthlutunar þessara verkefnaflokka verða kynntar í júní og ágúst.
Verkefnin sem um ræðir eru:
GEMS - Guidance for Educators Mentors and Students. (http://www.leogems.org)
Stýristofnun er Iðan fræðslusetur.
RECALL – Recognition of Quality in Lifelong Learning. http://www.europeanqualitymark.org
Stýristofnun er Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Fimm nemendur fóru í ferð til Karlsstad í Svíþjóðar á vegum starfsbrautar fyrir nemendur með einhverfu í Menntaskólanum í Kópavogi. Ferðin var farin í mars 2011 og stóð í tvær vikur. Óhætt er að segja að upplifun nemenda var afar góð af verunni í Svíþjóð og mikill ávinningur fyrir þá einstaklinga sem tóku þátt að fá að upplifa nýtt umhhverfi, kynnast nýjum aðstæðum og efla sjálfstæði sitt.
Lesa meira...Tólf eldhressir náms- og starfsráðgjafar frá sex löndum Evrópu tóku í ár þátt í hinu árlega Academia námskeiði sem Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar stendur fyrir. Þema námskeiðsins í ár var ráðgjöf fyrir fólk sem stendur á krossgötum milli náms, vinnu eða atvinnuleysis.
Lesa meira...Skotar hafa unnið markvisst að því að þróa menntakerfi þannig að auðvelt sé að fara á milli námsbrauta og skólastiga of hafa verið í fararbroddi í Evrópu hvað þetta áhrærir. Í mennta- og menningarmálaráðuneytinu eru sérfræðingar önnum kafnir við sambærilega vinnu og er áætlað að drög að sambærilegri fræðslustefnu liggi fyrir síðar á þessu ári.
Lesa meira...
Árlega skipuleggur Landskrifstofa menntaáætlunarinnar námsheimsókn til Íslands, og auk þess fá 10 Íslendingar styrki til að taka þátt í námsheimsóknum í Evrópu.
Landskrifstofur um alla Evrópu standa fyrir tengslaráðstefnum með það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og stofnanir sem eru að reyna að ná til sömu markhópa og vilja ná fram sambærilegum árangri á tilteknu sviði. Þátttaka í tenglsaráðstefnu er góð leið til að komast í samband við evrópska samstarfsaðila og til að þróa áfram hugmynd að verkefni með það að markmiði að undirbúa umsókn um Leonardo styrk sem kemur til úthlutunar árið 2012. Þegar hafa veri auglýstar þrjár spennandi tengslaráðstefnur á haustmánuðum 2011.
Lesa meira...




