Til þess að geta sótt um styrki fyrir Grundtvig samstarfsverkefni (LP) er nauðsynilegt að hafa samstarfsaðila frá Evrópu. Hér að neðan er yfirlit yfir mögulegar leiðir til að finna samstarfsaðila.
Reglulega berast Landskrifstofunni erindi frá evrópskum aðilum sem eru að leita eftir íslenskum samstarfsaðilum. Þessum erindum safnar starfsfólk Grundtvig saman og setur hér inn á síðuna eins fljótt og þau berast. Vinsamlegast athugið að Landskrifstofan ábyrgist ekki þessa aðila og leggur ekki mat á erindin sem slík.
Undirbúningsstyrkir
Undirbúningsstyrkir (Preparatory visits) eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa umsóknir í Grundtvig verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvægt fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram, það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna. Sjá nánar undir einstaklingsstyrkir - undirbúningsheimsóknir, á heimasiðu Grundtvigs.
Námsferðir (VEX)
- Sjá: European Commission - Education and training: Sjá nánar
Tengslaráðstefnur
Tengslaráðstefnur hafa það að markmiði að leiða saman fólk sem hefur áhuga á þátttöku í Grundtvig verkefnum. Þar myndast tengsl milli fólks og oft eru þróaðar verkefnahugmyndir á slíkum ráðstefnum. Þetta er einnig góð leið fyrir þá sem hafa hugmynd og þurfa að finna samstarfsaðila. Upplýsingar um tengslaráðstefnur fyrir umsóknarfrest 2013 birtast um leið og þær berast. Hafið samband við okkur í Grundtvig ef þið óskið eftir að taka þátt í eftirfarandi tenglsaráðstefnum haustið 2012:
Tengslaráðstefna í Sevilla, Spánn 2.-5. des 2012. Skráning fyrir 1. nóvember. Ath. breytt dagssetning. Áhugasamir stofnanir hafið samband við Landskriftsofu.
Sjá nánar hér: Invitation (,pdf 123k) - Draft agenda (,pdf 142k) - Practical information (,pdf 511k)
Tenglsaráðstefna í Vihula, Eistlandi 30. september - 4.október 2012. Skráningu lokið
Sjá nánar hér: Invitation (.word, 51k) - Draft agenda (.word, 43k)
Tenglsaráðstefna í Antalya, Tyrklandi 8. - 11. nóvember 2012. Skráningu lokið
Sjá nánar hér: Draft agenda (.pdf, 386k) - Practical information (.pdf, 409k) - Registration form (.word, 847k)
Tenglsaráðstefna í Wolfenbüttel, Þýskalandi 29. nóvember - 2. desember 2012. Skráningu lokið
Sjá nánar hér: Invitation (.pdf, 245k) - Draft agenda (.pdf, 243k) - Practical information (.pdf, 599k) - Registration form (.word, 195k)
Gagnabankar yfir mögulega samstarfsaðila
Ymsar evrópskar landsskriftstofur og samstarfsnet hafa tekið saman gagnabanka yfir mögulega samstarfsaðila. Hér fyrir neðan eru listaðir nokkrir þeirra.


