Umsóknarfrestir Grundtvig 2013

Endurmenntun (IST):
16. janúar 2013 (fyrir námskeið frá 1. maí 2013)
30. apríl 2013 (fyrir námskeið frá 1. september 2013)
17. september 2013 (fyrir námskeið frá 1. janúar 2014)
Samstarfsverkefni:
21. febrúar 2013
Vinnustofur:
21. febrúar 2013
Aðstoðarkennari:
28. mars 2013
Sjálfboðaliðaverkefni 50+:
28. mars 2013


Grundtvig bæklingur


Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar


 


Upplýsingar á vef EACEA

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Grundtvig styrkir

Undirbúningsheimsóknir - Grundtvig Preparatory Visits:

Ferðastyrkir til að sækja undirbúningsfundi eða tengslaráðstefnur, til að koma af stað samstarfsverkefnum.

Umsóknarfrestur:  Ekki eru ákveðnir umsóknarfrestir en umsókn þarf að berast að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrir brottför. Tengslaráðstefnur eru flestar haldnar að hausti víðs vegar í Evrópu.

Undirbúningsstyrkir eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa Grundtvig verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvægt fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram og það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna.

Þeir sem hafa áhuga á að undirbúa verkefni og verkefnaumsóknir geta sótt um undirbúningsstyrkir (preparatory visits grants) til Landskrifstofu menntaáætlunar ESB. Þeir sem hyggjast sækja tengslaráðstefnur geta sótt um undirbúningsstyrk sem og þeir sem eru að fara að hitta væntanlega samstarfsaðila. Takmarkað fjármagn er til ráðstöfunar til þessa verkefnis en reiknað er með að umsóknir séu afgreiddar mánaðarlega á meðan fjármagn endist.  

Hámarksstyrkur er 1500 € og geta styrkirnir verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Þegar um er að ræða þátttöku á tengslaráðstefnum eru greidd ráðstefnugjöld en þegar sóttir eru fundir er greiddur uppihaldsstyrkur þar sem miðað við fjölda ferðadaga. Uppihaldsstyrkur er mishár eftir löndum.

Dvalarlengd er að hámarki 5 dagar.

Eftir að heimsókninni lýkur þurfa styrkþegar að skila lokaskýrslu sem og reikningum fyrir ferðakostnaði og brottfararspjöldum.

Þegar sótt er um undirbúningsstyrk þarf að fylla út rafrænt umsóknareyðublað.

Umsóknir & eyðublöð

Nánari útlistun á ensku - undirbúningsheimsóknir og tengslaráðstefnur