Umsóknarfrestir Grundtvig 2013

Endurmenntun (IST):
16. janúar 2013 (fyrir námskeið frá 1. maí 2013)
30. apríl 2013 (fyrir námskeið frá 1. september 2013)
17. september 2013 (fyrir námskeið frá 1. janúar 2014)
Samstarfsverkefni:
21. febrúar 2013
Vinnustofur:
21. febrúar 2013
Aðstoðarkennari:
28. mars 2013
Sjálfboðaliðaverkefni 50+:
28. mars 2013


Grundtvig bæklingur


Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar


 


Upplýsingar á vef EACEA

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Grundtvig styrkir

Endurmenntun - Grundtvig In-Service-Training (IST)

Styrkir veittir til endurmenntunar/þjálfunar fullorðinsfræðslukennara í allt að sex vikur - námskeið eða starfsþjálfun (job-shadowing). Kennarar velja sér námskeið í Evrópu í sínu fagi.

Ákveðnir umsóknarfrestir:

  • 16. janúar 2013 (fyrir námskeið frá 1. maí 2013)
  • 30. apríl 2013 (fyrir námskeið frá 1. september 2013)
  • 17. september 2013 (fyrir námskeið frá 1. janúar 2014)

Umsóknir berist
1. á rafrænu formi má fylla út á íslensku. MUNA að ýta á "submit" takkann á síðustu síðu
2. síðan skal skila útprentuðu eintaki undirritað af skólastjóra og umsækjanda. ATH umsókn er ekki gild nema að útprentuð umsókn berist.

3. staðfesting á plássi á námskeiði þarf að fylgja umsókn

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
b.t Grundtvig
Dunhaga 5
107 Reykjavík


Umsókn  um endurmenntun kennara.

  Endurmenntun_5.6_2013.pdf (.pdf 1015 K) Sækja skjal

Smellið á "sækja skjal" og vistið skjalið t.d. á skjáborðið, lokið vafraglugganum og opnið umsóknina úr tölvunni (af skjáborðinu).

Í  endurmenntun (In-Service-Training) er átt við þá sem sinna kennslu í fullorðinsfræðslu.

Nánari útlistun - endurmenntun (.pdf, 1282k)

Leit að námskeiðum:

 

Námsferðir - Grundtvig Visits and Exchange (VEX)

Námsheimsóknir, ráðstefnur eða vinnustofur í Evrópu frá einum degi í allt að 12 vikum.

Umsóknarfrestur:

  • a.m.k. mánuði áður en ferð er farin.

Nánari útlistun - námsferðir (.pdf, 1217k)

Hvert get ég farið?

  • Sjá líka undir,,Leit að samstarfsaðilum'' á heimasíðu Grundtvig

 

Undir námsferðir falla umsækjendur undir einhverja af eftirfarandi þáttum:

  • Einstaklingar sem vinna við formlega eða óformlega fullorðinsfræðslu á einhvern hátt í fullu starfi eða í hlutastarfi, þ.m.t. starfandi sjálfboðaliðar
  • Kennarar/leiðbeinendur í fullorðinsfræðslu, formleg og óformleg kennsla
  • Stjórnendur við stofnanir sem bjóða upp á fullorðinsfræðslu
  • Starfsfólk sem sinnir fjölmenningarlegri fræðslu eða vinnur með nýbúum
  • Starfsfólk sem vinnur með fólki með sérþarfir
  • Starfsfólk sem vinnur með útigangsfólki  eða álíka hópum
  • Náms- og starfsráðgjafar í fullorðinsfræðslu
  • Starfsmenn á vegum svæðisskrifstofa sem sinna fullorðinsfræðslu
  • Starfsfólk/kennarar sem þjálfa fullorðinsfræðslukennara
  • Einstaklingar sem ætla sér að leggja fyrir sig vinnu í fullorðinsfræðslu og get a stutt það í sinni umsókn.
  • Einstaklingar sem hafa lokið sérnámi í fullorðinsfræðslu og ætla að vinna á því sviði. Einnig geta nemendur í fullorðinsfræðslukennaranámi á háskólastigi sótt um VEX styrki, þurfa að hafa lokið að minnsta kosti tveimur árum.