Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar

 

Upplýsingar á vef EACEA 

Study_in_Europe_logo
Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

 

 

 

Stúdentar sækja um að fara í starfsnám og um Erasmus styrk til síns heimaskóla.
Háskólarnir fá styrkúthlutun frá landskrifstofu og miðla síðan styrkjum áfram til sinna stúdenta.
Ekki þarf að vera samningur á milli heimaskóla og gestastofnunar (fyrirtæki, háskóli, stofnun etc.). Fæstir háskólar hafa komið sér upp formlegum samstarfsaðilum vegna starfsnáms. Stúdentar þurfa því oft að finna gestastofnunina sjálfir en það verður að vera í samráði við heimaskóla.

Hægt er að nýta ýmsar vefsíður til að leita að starfsnámsmöguleikum, t.d:

Hægt er að nýta sér þjónustu Nordjobb (til 28 ára aldurs) og sækja um Erasmus starfsnámsstyrk að því gefnu að starfið sé samþykkt af heimaskóla (veiti reynslu sem nýtist í náminu). 
Nordjobb sér um að leita að vinnu og útvegar húsnæði ef vinna fæst. Vinna í gegnum Nordjobb er ávalt launuð. 

Ráðlegt er að hefja undirbúning að umsókn a.m.k. hálfu ári áður en umsóknarfrestur rennur út.  Gott er að ráðfæra sig við alþjóðafulltrúa og kennara varðandi val á starfsnámi.

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2012

Umsóknum er skilað til alþjóðaskrifstofu heimaskóla. Tekið er við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn en umsóknir sem berast í tíma hafa forgang varðandi úthlutun styrkja.
 

Með umsókn þarf að skila

  • Starfsnámssamningi (Training  Agreement) (.doc, 80 kb) . Starfsnámssamningur  er samningur á milli stúdents,  heimaskóla og móttökuaðila.  Í samningnum er tilgreint í hverju starfsnámið muni felast og hvaða færni stúdentinn á að öðlast með því. Ef stúdent uppfyllir skilyrði samningsins er það vottað af gestastofnun og heimaskóli er skuldbundinn til að meta starfsnámið sem hluta af námi. Ef starfsnámið er ekki metið til eininga þarf sérstaklega að tilgreina það í skírteinisviðauka (diploma supplement) við útskrift. Nánari upplýsingar um þetta fást hjá alþjóðafulltrúa.
  • Námsferli. Stúdent þarf þó EKKI að hafa lokið 60 ECTS einingum eins og þegar um skiptinám er að ræða.
     

Svar við umsókn

  • Svar við umsókn um styrk ætti að liggja fyrir í lok apríl.
  • Mjög breytilegt er hvernig samskipti fara fram við gestastofnun og því erfitt að segja eitthvað um hvernær svar berst. Stundum sjá stúdentar alfarið um þau samskipti sjálfir, stundum fara þau í gegnum kennara eða alþjóðaskrifstofu.
     

Samningur og fyrri greiðsla styrks

  • Áður en stúdent fer utan er gengið frá samningi vegna styrksins á milli stúdents og heimaskóla.
  • Í „Erasmus Student Charter“ (.doc, 34 kb) sem er fylgiskjal með samningnum koma fram réttindi og skyldur stúdentsins.
  • Stúdent fær greidd 70% af styrknum fyrir brottför.
     

Upphæð styrks skólaárið 2011-2012 (getur breyst á milli ára)

  • 500 € ferðastyrkur 
  • 500 € á mánuði í uppihaldsstyrk (lágmarksdvöl er 3 mánuðir).
  • Styrkurinn hefur ekki áhrif á greiðslur frá LÍN
     

Uppgjör og seinni greiðsla styrks

  • Að námsdvöl lokinni þarf stúdent að fylla út rafræna lokaskýrslu.
  • Stúdent þarf að skila inn staðfestingu frá gestastofnun þess efnis að dvölin hafi verið í samræmi við starfsnámssamninginn.
  • Stúdent fær 30% af styrknum sé gengið frá ofangreindum atriðum.
  • Hafi stúdent ekki sinnt starfsnáminu á meðan á dvölinni stóð eða komið fyrr heim en til stóð getur komið til endurgreiðslu á styrknum í heild eða að hluta til.