Landskrifstofur um alla Evrópu standa fyrir tengslaráðstefnum með það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og stofnanir sem eru að reyna að ná til sömu markhópa og vilja ná fram sambærilegum árangri á tilteknu sviði. Þátttaka í tengslaráðstefnu er góð leið til að komast í samband við evrópska samstarfsaðila og til að þróa áfram hugmynd að verkefni með það að markmiði að undirbúa umsókn um Leonardo styrk sem kemur til úthlutunar árið 2012.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á að taka þátt í tengslaráðstefnu þurfa að fylla út sérstakt umsóknareyðublað. Umsóknum vegna Leonardo tengslaráðstefna er skilað til Leonardo skrifstofunnar, Rannsóknaþjónustu Háskólans, Dunhaga 5, 107 Reykjavík, sími 525 4900. Umsóknareyðublaðið er rafrænt og er það sama og notað er til að sækja um undirbúningsstyrk. Styrkirnir eru að hámarki € 1500 og geta þeir verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld.
Smelltu hér til að sækja umsóknareyðublaðið til að sækja um styrk til að fara á tengslaráðstefnu
ATH! Þetta er sama formið og notað er til að sækja um undirbúningsstyrk.
Hér fyrir neðan er tafla sem inniheldur upplýsingar um tengslaráðstefnur sem kynntar hafa verið fyrir 2012. Með því að smella á heiti ráðstefnunar (Titill/Þema) er hægt að fá nánari upplýsingar, þ.e. ef þær hafa borist Landskrifstofu
Frekari upplýsingar um ráðstefnur eru settar inn á síðuna jafnóðum og þær berast.
Listi yfir tengslaráðstefnur 2012
| Dags. | Landskrifstofa | LLP áætlun | Markhópur | Titill/Þema | Staðsetning |
| 4.-7. júlí | NA Bretlandi | Leonardo/Grundtvig | Adult Education og VET - Partnership | Back to Learning: Back to work | Birmingham |
| 9-12. október | NA Finnland | Leonardo | VET professionals including teachers, trainers, and educational managers in artisan field e.g. metal, wood, handicraft, clothing, environmental design and construction andaudio visual communication | Creativity & Innovations in Handicraft and Arts | Espoo, Finnland |
| 9-12 október | NA Pólland | Leonardo/Comenius | Starfsmenntaskólar | European Cooperation in the Field of Agriculture, the Environment and Ecology | Pólland |
| 15-18 október | NA Króatía | Leonardo |
Fostering employability for trainees in Initial Vocational Training (IVT): apprentices, pupils in vocational training, trainees (except those in higher education
Continuous development of skills and competences of VET professionals: teachers, trainers, vocational training staff, principals, human resources managers, guidance counsellors, etc. |
"Linking VET to market needs” | Dubrovnik, Króatía |






