|
|
|
Úthlutun yfirfærsluverkefna Undirritaðir hafa verið samningar um þrjú stór verkefni úr Leonardo da Vinci starfsmenntahluta Menntaáætlunar Evrópusambandsins. Alls bárust átta umsóknir um stór verkefni undir íslenskri verkefnisstjórn og ákvað íslenska landskrifstofan að undangengnu mati sérfræðinga að styrkja þrjú þeirra. |
|
Úthlutun mannaskiptaverkefna Styrkupphæðinni, 433 þúsund evrum var úthlutað til 21 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir samtals 199 einstaklinga. Í umsóknarferlinu var lögð sérstök áhersla á tvo forgangshópa, þ.e. nemendur og starfsfólk starfsmenntaskóla og símenntunarstofnana sem og fólk sem stendur höllum fæti, s.s. ungt atvinnulaust fólk, fatlaða einstaklingar og minnihlutahópa. Þessar áherslur báru góðan árangur sem birtist í fjölda umsókna fyrir þessa markhópa. |
|
Úthlutun samstarfsverkefna Til úthlutunar voru 133 þúsund evrur og var að þessu sinni unnt að styrkja 7 fjölbreytt og spennandi verkefni. Viðfangsefni þeirra eru afar fjölbreytt en um er að ræða verkefni á sviði orkufræðslu, umhverfismála, frumkvöðlastarfsemi kvenna, starfsþjálfunar fyrir heilbrigðis- og félagstengdra greina o.fl. |
|
AFMÆLISHÁTÍÐ Í RÁÐHÚSINU 25. NÓVEMBER KL. 15-18 Í tilefni starfsafmæla Menntaáætlunar ESB verður efnt til afmælishátíðar í Ráðhúsi Reykjavíkur, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 15-18. Litið verður yfir farinn veg og rifjaðar upp skemmtilegar reynslusögur en mikill fjöldi fólks hefur tekið þátt í evrópskum samstarfsverkefnum á undanförnum 15 árum. Á hátiðinni verða kynnt fjölbreytt Evrópuverkefni og veittar viðurkenningar fyrir fyrirmyndarverkefni í hverjum verkefnisflokki. |
|
MENNTUN TIL NÝSKÖPUNAR: Fræðslu- og umræðufundur Menntun til nýsköpunar er heiti fræðslu- og umræðufundar sem haldinn verður í Þjóðarbókhlöðunni 9. desember næstkomandi kl. 9-13. Í fundarlok verður gestum boðið upp á léttan hádegisverð og tóm gefst til umræðna. Leiðir til eflingar nýsköpunar eru afar áríðandi um þessar mundir svo endilega TAKIÐ DAGINN FRÁ! |
|
NEW SKILLS NETWORK - fjölþjóðlegt samstarfsverkefni Landskrifstofa menntaáætlunar ESB á Íslandi, Leonardo starfsmenntahlutinn, hlaut í byrjun árs 400 þúsund evra styrk frá Evrópusambandinu (um 60 milljónir ísl.kr) til að stýra þriggja ára fjölþjóðlegu samstarfsverkefni sem kallast New Skills Network. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur um nokkurt skeið unnið að stefnumótun til framtíðar um með hvaða hætti megi stemma stigu við síauknu misræmi í færni fólks á evrópskum vinnumarkaði og framboði á störfum. |
|
EUROPASS FERILSKRÁIN KYNNT UM ALLT LAND Gamall draumur starfsfólks Landskrifstofunnar rættist í ár þegar þeir fengu tækifæri til að ferðast um allt land og kynna Europass ferilskrána. Í upphafi árs útbjuggu nemendur og kennari Margmiðlunarhönnunar Borgarholtsskóla kynningarmyndband sem sett var á YouTube þar sem fólki var kennt að fylla út þessa rafrænu ferilskrá. |
|
UMSÓKNIR FYRIR ÁRIÐ 2011 Þrátt fyrir að ekki séu komin endanleg eyðublöð fyrir Leonardo umsóknir fyrir árið 2011 er vert að hvetja fólk til að hefja undirbúning að umsókn strax. Eins og undanfarin ár verður umsóknarfrestur í febrúar og grunnreglur fyrir umsóknir verða óbreyttar. Einhverjum áhersluatriðum verður breytt en auglýst er eftir umsóknum sem styrkja starfsmenntun í landinu og auka á fjölbreytileika þeirra sem starfa við hinu ýmsu svið atvinnulífsins. |
|
ÝMSAR SPENNANDI TENGSLARÁÐSTEFNUR Á DÖFINNI Landskrifstofur um alla Evrópu standa fyrir tengslaráðstefnum á næstu mánuðum með það að markmiði að leiða saman fyrirtæki og stofnanir sem reyna að ná til sömu markhópa og vilja ná fram sambærilegum árangri á tilteknu sviði. Þátttaka í tengslaráðstefnu er góð leið til að komast í samband við evrópska samstarfsaðila og til að þróa áfram hugmynd að verkefni með það að markmiði að undirbúa umsókn um Leonardo styrki. Næsti umsóknarfrestur verður í upphafi árs 2011. |
|
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Ef þú vilt ekki fá þetta fréttabréf í framtíðinni eða ef þú hefur ábendingar varðandi fréttabréfið, vinsamlegast hafðu samband við Landskrifstofuna eða sendu tölvupóst á lme@hi.is |




