Adam verkefnabankinn
ADAM er gagnabanki sem ætlað er að miðla verkefnum og afurðum innan Leonardo hluta Menntaáætlunar ESB.
Sífellt koma fram á sjónarsviðið nýjar afurðir Leonardó verkefna sem eru sérsniðnar að kröfum starfsmenntunar í skólum og fyrirtækjum.
Með því að nýta þér ADAM - gagnagrunninn geturðu aflað þér upplýsinga um afurðir Leonardo verkefna. Til þess eru tvær leiðir: Annað hvort slærðu inn leitarorð inn í reitinn "Search for Projects and Products" og þá færðu upplýsingar úr gagnagrunninum um þau verkefni sem samsvara leitarorðum þínum eða þú getur gert ítarlegri leit með því að smella á "Extended Search".
Ert þú verkefnisstjóri Leonardo verkefnis og vilt gera afurðir verkefnis þíns aðgengilegar almenningin? Skráðu þá verkefnið þitt í ADAM gagnagrunninn.
Heimasíða gagnabankans er: www.adam-europe.eu
EST verkefnabankinn
EST, European Shared Treasure, er gagnabanki fyrir Comenius, Leonardo og Grundtvig samstarfsverkefni. Honum er ætlað að auka sýnileika verkefna og bæta aðgengi að upplýsingum um afurðir verkefna.
Á slóðinni fyrir neðan er hægt að leita eftir verkefnum:
EVE verkefnaabankinn
Eve er upplýsingagátt fyrir verkefni innan evrópsku mennta- og ungmennaáætlunarinnar. Hér er hægt að nálgast þúsundir verkefna og afurðir Leonardo, Comenius, Erasmus og Grundtvig verkefna, einnig íslenskra. Eve heldur utan um verkefni sem styrk hafa verið af Evrópusambandinu. Í gegnum Eve geturðu fengið aðgang að ýmis konar námsefni, handbókum, ljósmyndum og mörgu fleira.
Í Eve ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi!






