Hverjir geta sótt um styrk?
Allar menntastofnanir sem sinna starfsmenntun og aðrir aðilar sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun á einhvern hátt s.s. skólar og fræðsluaðilar; stéttarfélög og aðilar vinnumarkaðar, félagasamtök og fagfélög, fyrirtæki, aðilar sem sinna náms- og starfsráðgjöf og rannsóknastofnanir og símenntunarmiðstöðvar.
Forgangsatriði árið 2012
Öll verkefni sem Leonardo starfsmenntaáætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri markmiðum áætlunarinnar en þau eru:
- Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miða að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
- Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
- Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og stafsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun.
Fyrir hvert umsóknarár kynnir Evrópusambandið forgangsatriði sem taka til sviða innan starfsmenntunar þar sem mikil þörf er talin á aðgerðum og verkefnum. Allar umsóknir verða að falla að einu þessara forgangsatriða. Fyrir umsóknafrest ársins 2012 sem er 2. febrúar eru forgangsatriðin eftirfarandi:
• Áhersla á samvinnu starfsmenntaskóla og atvinnulífsins(Encouragement of cooperation between VET and the world of work)
• Stuðningur við menntun og þjálfun starfsmenntakennara, leiðbeinenda og stjórnenda í starfsmenntastofnunum (Support to initial and continious training of VET teachers, trainers, tutors and VET institution managers)
• Aðferðir við að efla lykilfærni nema í starfsmenntun. (Promotion of the acquisition of key competences in VET
• Aðferðir til að auka fjölda þeirra nemanda sem taka hluta af starfsnámi sínu erlendis (Development and transfer of mobility strategies in VET)
• Aðferðir við að samræma raunfærnimat á milli landa og starfsgreina(ECVET for transparency and recognition of learning outcomes and qualifications)
• Auka gæðaeftirlit í starfsmenntun (Improving quality assurance systems in VET)
Forgangshópar 2012; Verkefni þar sem lögð er áhersla á vinnustaðanám sem og raunfærnimat
Nánari upplýsingar um forgangsatriði Menntaáætlunar ESB færðu með því að skoða auglýsingu Evrópusambandsins eftir umsóknun (call for proposals 2012 )- athugið að í skjalinu er fjallað um allar áætlanir Menntaáætlunarinnar og að um Leonardo áætlunina er fjallað í kafla 3).






