Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafrænt umsóknareyðublað fyrir árið 2012. Einnig er hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu eyðublaðsins.

Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum, þ.m.t kvittuninni fyrir því að umsókn hafi verið send, í þríriti (frumrit og tvö afrit) til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests, 21. febrúar 2012.  Póststimpill gildir. Undirrituð umsókn á pappír er hin gilda umsókn og berist hún ekki á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Leonardo
Dunhaga 5
107 Reykjavík

Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2012.

Áætlun Umsóknir Skýrslur Handbók Leiðbeiningar
Samstarfsverkefni

Rafrænt umsóknareyðublað - samstarfsverkefni (Acrobat PDF 1771 K)

ATH! Afar mikilvægt er að vista (Save) umsóknarformið strax í tölvunni ykkar áður en þið farið að fylla inn í það. Ef senda á umsóknina á milli í tölvupósti er ráðlagt að zippa hana fyrst til að koma í veg fyrir að gögnin skemmist.
 

Landskrifstofa sendir verkefnisstjóra samstarfsverkefna tengil í milli- og lokaskýrslu sem er í rafrænu pdf-formi. Handbók fyrir umsækjendur LLP eForms 2012.doc (Microsoft Word 219 K)
Námskeid mannaskipti-partnership 9.jan 2012_2.pdf (Acrobat PDF 644 K)

 

Leiðbeiningar fyrir notkun rafrænna umsóknareyðublaða

Rafræna umsóknareyðublaðið er pdf-skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 10 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com

Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum til þess að senda inn gilda umsókn:

  1. Vista rafræna umsóknareyðublaðið á skjáborðið í tölvunni sem PDF skjal. Loka vafraglugganum.  Opna umsóknareyðublaðið frá skjáborðinu.
     
  2. Fylla út eyðublaðið  (í tölvunni)- Ekki þörf fyrir að vera nettengdur á meðan;
     
  3. Smella á Validate-hnappinn á rafræna forminu (ekki nettengd/ur): Þessi aðgerð tryggir að allir skyldureitir séu útfylltir( og uppfylli lágmarkskröfu um ákveðið form framsetningar);
     
  4. Senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt: Ath. það er eingöngu stýristofnun samstarfsverkefna sem sendir umsóknina inn rafrænt. Til að senda umsóknareyðublaðið inn rafrænt þarf tölvan að vera nettengd. Þá er smellt á hnappinn Submit online á öftustu síðunni. Ef sendingin heppnast kemur upp staðfesting á því;
     
  5. Vista: Við mælum með að þú vistir umsóknina undir lýsandi nafni á góðum stað í tölvunni þinni (þar sem þú getur fundið hana aftur) því þú gætir þurft að skoða hana síðar;
     
  6. Prenta: Rafræna umsóknareyðublaðið (til undirritunar), ath! allir samstarfaðilar þurfa að skila inn útprenti með undirritun til sinnar Landskrifstofu;
     
  7. Senda í pósti til Landskriftofu fyrir lok umsóknarfrests: Útprentaða og undirritaða umsókn. Athugið að ekki er nóg að senda umsóknina inn rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í þríriti til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests.  Póststimpill gildir.

ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)