- Niðurstöður árlegrar úthlutunar til samstarfsverkefna liggur fyrir í júlímánuði og geta verkefnin hafist 1. ágúst svo framarlega sem samningur hafi verið gerður. Eftir að samningur hefur verið undirritaður er greidd fyrirframgreiðsla, 80% af styrkupphæðinni.
- Á miðju tímabili skal skila milliskýrslu þar sem skýrt er frá framgangi verkefnisins og lokaskýrslu skal skila tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur.
- EST - European Shared Treasure er gagnabanki samstarfsverkefna sem allir þátttakendur í samstarfsverkefnum (coordinator and partners) þurfa að skrá í upplýsingum um verkefni
Skýrsluform verkefna
Hér fyrir neðan eru skýrsluform milliskýrslna vegna verkefna áranna 2011 og 2012
Milliskýrslu skal skila til Landskrifstofu Menntaáætlunar, Leonardó áætlunarinnnar á miðju verkefnatímabilinu eða 1.ágúst árið eftir að verkefnið hefst.. Hér fyrir neðan eru form milliskýrslna og er miðað við það ár sem samningar eru gerðir um verkefnin og þeim úthlutað.
Form fyrir milliskýrslu 2011 verkefna PROGRESS REPORT 2011
Form fyrir milliskýrslu 2012 verkefna PROGRESS REPORT 2012
Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar vegna lokaskýrslna
Gildistími Leonardo samstarfsverkefna eru tvö ár og kemur fram í article 2 í samningi um verkefnin. Eingöngu ferðir sem farnar eru innan samningstímans eru fullgildar og samþykktar sem hluti af verkefninu.
Gildistími verkefna ársins 2011 rennur út 31. júlí 2013
Gildistími verkefna ársins 2012 rennur út 31. júlí 2014
Gildistími verkefna ársins 2013 rennur út 31. júlí 2015
Lokaskýrslu skal skila til Landskrifstofu tveimur mánuðum eftir að gildistíma verkefnisins lýkur eða í síðasta lagi 30. september.
Lokaskýrslan er rafrænt skýrslueyðublað, svokallað eForm. Undir lok verkefnatímans fær hver verkefnastjori senda slóð í sitt form með tölvupósti og skal hann fylla út það form, prenta út, undirrita og senda til Landskrifstofu Menntáætlunar ESB, Dunhaga 5, 107 Reykjavík.
Nauðsynleg fylgigögn með lokaskýrslu eru: staðfesting á dvöl/ferðum; afrit flugmiða og/eða brottfararspjöld sem og undirrituð staðfesting á þátttöku á fundum.
Eftir að lokaskýslan hefur verið samþykkt má greiða lokagreiðslu verkefnisins að því tilskildu að upplýsingar hafið verið fylltar inn í EST gagnagrunn samstarfsverkefna. Hver þáttttakandi fær send aðgangsorð með tölvupósti til að geta sett inn upplýsingarnar.
Leiðbeiningar fyrir rafræn skýrslueyðublöð - eForm
Rafræna skýrslueyðublaðið er pdf skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader í útgáfu 8.2 eða nýrri. Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com
- Landskrifstofa sendir hverjum verkefnisstjóra slóð í sitt eyðublað. Vistið skjalið í tölvunni ykkar (velja Save). Það þarf ekki að vera nettengdur til að vinna með umsóknina í tölvunni.
- Til að athuga hvort eyðublaðið sé rétt útfyllt, þarf að smella á Validate-hnappinn. Ef ekki hefur verið fyllt rétt út, kemur upp ábending um það.
- Ekki er hægt að senda inn umsóknina fyrr en hægt er að "Validera" allt eyðublaðið. Þegar því er lokið skal smella á Submit Online - hnappinn. Þá er rafræna umsóknin send (tölvan þarf að vera nettengd). Ef sendingin heppnast, birtist staðfesting á eyðublaðinu. Prentið skýrsluna út og undirritið og sendið til Landskrifstofu (Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB, Leonardo, Dunhaga 5, 107 Reykjavík).
- Ef ykkur vantar frekari aðstoð getið þið haft samband við starfsfólk Leonardo áætlunarinnar, Ástu Vigdísi í síma 525 4151 eða með tölvupósti: astavig(hjá)hi.is eða Margréti í síma 525-4291 eða með tölvupósti:marjoh(hjá)hi.is
EST, European Shared Treasure gagnabankinn
EST, European Shared Treasure gagnabankinn er sérstakur gagnabanki fyrir samstarfsverkefni. Honum er ætlað að auka sýnileika verkefna og bæta aðgengi að upplýsingum um afurðir verkefna. Samkvæmt samningi skulu allir þátttakendur í samstarfsverkefnum (coordinator and partners) skila upplýsingum um verkefnin í EST gagnagrunninn.
Það er munur á hlutverki og aðgangi þeirra sem eru verkefnisstjórar (coordinators) og þátttakenda (partners). Í meginatriðum virkar gagnagrunnurinn þannig að búið er að setja lýsingu á verkefninu inn í kerfið og var hún tekin beint úr umsókninni. Þessi lýsing er á ensku og lokuð öllum nema verkefnisstjórum sem geta lagfært hana ef þörf kerfur. Allir þátttakendur eru beðnir að þýða þessa lýsingu á sitt eigið tungumál. Að auki eru allir þátttakendur beðnir að setja inn upplýsingar um niðurstöður (results) verkefnisins, bæði á íslensku og ensku.
Allir þátttakendur fá senda frá Landskrifstofu slóð að gagnagrunninum og aðgangsorð. Ítarlegur leiðbeiningabæklingur er hér fyrir neðan en hann er nauðsynlegt að hafa við hendina þegar byrjað er að færa upplýsingar inn í gagnagrunninn.
Ein af forsendum þess að lokagreiðsla verkefnisins sé framkvæmd er að búið sé að færa inn þessar upplýsingar. Því er mikilvægt að ljúka þessu ferli fyrir lok september.
Á slóðinni fyrir neðan er hægt að leita eftir verkefnum (ath. þetta er ekki slóðin sem verkefnisstjórar nota til að setja inn upplýsingar um verkefni. Þá slóð fá verkefnisstjórar senda sérstaklega):
Skýrslukóðar
Við gerð þeirra skýrslna sem hér um ræðir eru notaðir ýmsar skammstafanir og kóðar. Vinsamlegast smellið hér til að sækja skjal yfir þá kóða sem notaðir eru (.doc, 151 kb).






