Umsóknarfrestir Leonardo 2013

Yfirfærsluverkefni 31 janúar 2013
Mannaskipti 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni 21. febrúar 2013


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




NSN_smellihnappur_2.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Umsóknareyðublað 2013

  • Hér fyrir neðan er hægt að sækja rafrænt umsóknareyðublað fyrir árið 2013.
  • Einnig er hægt að sækja handbók (á ensku) um notkun og innfyllingu eyðublaðsins..

Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt (Submit online). Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í þríriti (frumrit og tvö afrit) til Landskrifstofu fyrir lok umsóknarfrests, 1. febrúar 2013.  Póststimpill gildir. Undirrituð umsókn á pappír er hin gilda umsókn og berist hún ekki á pappír á tilsettum tíma er hún ógild

Umsóknin sendist til:

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Leonardo
Dunhaga 5
107 Reykjavík


 

Umsókn á íslensku

Árið 2013 er boðið upp á það fyrir umsækjendur að skrifa umsóknina á íslensku. í lið B.1. við Applicaion langueage er þá valin íslenska (IS-Icelandic). Ef það er gert þarf að skrifa samantekt (Summary) á ensku í reit D.1.

Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Ástu Vigdísi (525 4151/astavig(hjá)hi.is eða Margréti Jóhannsdóttur (525 4291/marjoh(hjá)hi.is).

Á síðunni Leiðbeiningar fyrir umsækjendur í kaflanum Umsóknarvinnan, er hægt að sækja ítarlegar leiðbeiningar um innihaldshluta umsóknarinnar.


Umsóknarfrestur fyrir 2013 verkefni er til og með 1. febrúar 2013.

Áætlun Umsóknir Skýrslur Handbók Leiðbeiningar

Nemendur í starfsmenntun (IVT)

Fólk á vinnumarkaði  (PLM)

Fagaðilar í starfsmenntun (VETPRO)

  Leonardo mannaskipta-verkefni_5.7_2013 (.pdf 1013 K) Sækja skjal

ATH! Afar mikilvægt er að vista (Save) umsóknarformið strax í tölvunni ykkar áður en þið farið að fylla inn í það. Ef senda á umsóknina á milli í tölvupósti er ráðlagt að zippa hana fyrst til að koma í veg fyrir að gögnin skemmist.
 

Landskrifstofa sendir verk-
efnisstjóra  tengil í  loka-
skýrslu sem er í rafrænu pdf-formi.

 Handbók um rafræn umsóknar-eyðublöð (á ensku)2013 (.pdf 809 K) Sækja skjal

glærur - mannaskipta og samstarfsverkefni (Acrobat PDF 128 K)

leiðbeinandi umsóknareyðublað (Acrobat PDF 926 K)

 

Leiðbeiningar fyrir rafræn umsóknareyðublöð

Vinsamlegast byrjið á því að sækja ykkur handbókina fyrir rafræna umsóknareyðublaðið (hér fyrir ofan) og lesa ykkur til um helstu atriði, áður en þið hefjist handa við að vinna með umsóknareyðublaðið. Rafræna umsóknareyðublaðið er pdf-skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader.

Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com

Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum til þess að senda inn gilda umsókn:

  1. Vista rafræna umsóknareyðublaðið í tölvunni sem PDF skjal. Loka vafraglugganum.  Opna umsóknareyðublaðið í tölvunni og hefjast handa við að fylla út í reitina.
     
  2. Ganga úr skugga um að allir skyldureitir séu útfylltir. Skyldureitir sem þarf að fylla út eru merktir með rauðu. Til að ganga úr skugga um að allir skyldureitir hafi verið fylltur út, þarf að smella á Validate-hnappinn.
     
  3. Reikna út fjárhagsupplýsingar (smellt á  „Calculate“-hnappinn). Tölva þarf að vera nettengd á meðan á útreikningi stendur.
     
  4. Senda inn rafrænt afrit umsóknarinnar. Smelltu á hnappinn „Submit online“-hnappinn. Ef sendingin heppnast, sérðu „Submission Status: OK“ undir fyrirsögninni „Submission Summary“ Ef rafræn sendingin heppnast ekki, smellið á hnappinn "Create email attachment" til að senda landskrifstofu rafræna afritið af umsókninni í tölvupósti. Ef það gengur ekki, vinsamlegast hafið samband við Landskrifstofu.
     
  5. Prentið út umsóknina (smellið á „Print form“-hnappinn).
     
  6. Undirritið/látið undirrita umsóknina (ath. aðeins sá sem má skuldbinda stofnunina má undirrita umsókn).
     
  7. Sendið umsóknina til Landskrifstofu í pósti fyrir lok umsóknarfrest (póststimpill gildir). Ath. það er hið útprentaða eintak umsóknarinnar sem er hin gilda umsókn.