Umsóknarfrestir Leonardo 2012

Yfirfærsluverkefni 2. febrúar
Mannaskipti 3. febrúar
Samstarfsverkefni 21. febrúar


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 




hnappur_nsn.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Næsti umsóknafrestur fyrir Leonardo mannaskiptaverkefni verður í 3. febrúar 2012. Aðeins er einn umsóknarfrestur á ári. 


 

Formleg auglýsing eftir umsóknum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú birt auglýsingu þar sem lýst er eftir umsóknum í Menntaáætlun Evrópusambandsins fyrir árið 2012 Upplýsingar um auglýsinguna. Athugið að í gögnum auglýsingarinnar er fjallað um allar undiráætlanir Menntaáætlunar Evrópusambandssins (Lifelong Learning Programme) og því þurfa umsækjendur Leonardó að einbeita sér að kaflanum um Leonardo. 

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur Leonardo áætlunarinnar  eru birtar eru á vef Evrópusambandsins.  Smellið hér til að komast í kaflann "how to participate"

Umsóknakerfið

Umsóknum um mannaskiptaverkefni árið 2012 skal skilað í rafrænu formi (svokölluð e-form).  Um er að ræða samræmd umsóknareyðublöð Evrópusambandsins sem gildir fyrir alla verkefnaflokka Menntaáætlunar ESB.

Umsóknareyðublað og fylgigögn er hægt að nálgast á síðunni Umsóknir og eyðublöð

Athugið að ekki er nóg að senda umsóknir rafrænt. Þær verður að prenta út, undirrita og senda með fylgigögnum í þríriti (frumrit og tvö afrit) til Landskrifstofu. Ef umsóknin berst ekki undirrituð á pappír á tilsettum tíma er hún ógild.

Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB,
Leonardo áætlunin
Dunhaga 5
107 Reykjavík

Umsóknarvinnan

Umsóknareyðublaðið er vistað á síðunni Umsóknir og eyðublöð
Tæknilegar upplýsingar og leiðbeiningar vegna e-forma eru einnig á síðunni Umsóknir og eyðublöð

Til leiðbeininga fyrir umsækjendur hafa einfaldar leiðbeiningar verið skrifaðar inn í umsóknareyðublað sem hægt er að sækja hér fyrir neðan. Til viðbótar og stuðnings eru nokkrar praktískar leiðbeiningar sem einnig er hægt að nálgast hér fyrir neðan.   

Vinsamlegast smellið hér til að sækja "leiðbeinandi umsóknareyðublað" 
Vinsamlegast smellið hér til að sækja praktískar leiðbeiningar með 2012 umsóknum

Áður en farið er að fylla inn umsóknina getur verið ágætt að biðja samstarfsaðila um að senda þær upplýsingar sem þarf um viðkomandi stofnun.  Sækja skjal

Samstarfsyfirlýsingar (letter of intent) frá væntanlegum samstarfsaðilum þurfa að fylgja umsóknunum. Það er ekki skilyrði en skiptir miklu fyrir gæði umsóknar.  Leiðbeiningar um "letters of intent" eru aftast í umsóknareyðublaðinu, í kafla J.1.   Sækja skjal 

Einkaaðilar sem skila inn umsókn sem er hærri en 25.000 evrur skulu láta afrit af síðasta ársreikning fyrirtækisimd fylja umsókn.

Sérstakir forgangshópar umsókna ársins 2012

Umsóknir frá aðilum sem skipuleggja starfs- og  vinnustaðanám, t.d.  starfsmenntaskólar og  starfsgreinaráð.  Áhersla skal lögð á vinnustaðaþjálfun í verkefnum.

Umsóknir sem snúa að þessum markhópum fá aukapunkta í mati umsókna og þannig forgang í umsóknaferli verkefna.

Styrkupphæðir umsókna ársins 2012

Hámarksstyrkur fyrir uppihald og ferðir (Subsistence)

Í verkefnum ársins 2012 er styrkur vegna uppihalds og ferða ekki sundurliðaður  heldur er um eina upphæð að ræða og er hún færð í reiti sem merktir eru uppihaldi (subsistence).  Gefnar eru út styrkupphæðir  fyrir eina viku, tvær vikur og síðan per viku eftir það.  Athugið  að 2 vikur er lámarksdvöl fyrir verkefnaflokkana IVT - Nemendur í starfsmenntaskólum, starfsnámi og á samningi og PLM - fólk á vinnumarkaði.  Einnar viku dvöl er því aðeins möguleg fyrir fagaðila í starfsmenntun, VETPRO verkefnaflokknum.

Styrkupphæðir eru misháar eftir löndum. Með því að smella hér færðu töflu sem sýnir styrkupphæð uppihalds fyrir íslenska umsækjendur í verkefnum ársins 2012. Í töflunni er um að ræða hámarksupphæðir sem gilda fyrir það land sem heimsótt er.

Í umsóknareyðublaðinu eru dálkar fyrir sundurliðaðan kostnað fyrir uppihald og ferðir en í íslenskum umsóknum skal aðeins fylla inn í dálkinn fyrir uppihald – Subsistence.  Ekkert er fyllt inn í dálinn fyrir ferðir – travel og hann látinn standa auður. 

Í umsóknum ársins 2012 er veitt undanþága á þessari reglu og mögulegt að sækja um viðbótarstyrk vegna ferða til Litháen, Lettlands, Eistlands, Búlgaríu og Rúmeníu.  Hámarks styrkur sem skilgreindur er í ferðalög til og frá viðkomandi löndum eru 500 evrur á mann, en miðað er við raunkostnað.  

Styrkir fyrir fatlaða einstaklinga og/eða fólk með sérstakar þarfir

Mögulegt er að sækja um hærri styrki ef um fatlaða einstaklinga er að ræða.  Það þarf að færa rök fyrir þeim viðbótarkostnaði sem sótt er um og við uppgjör þarf að sýna fram á viðbótarkostnað með því að leggja fram reikninga.  Hámarks viðbótarstyrkur fyrir ferðir fatlaðann einstakling eru 1000 evrur.
Einnig er hægt að sækja um  sérstakan styrk fyrir fylgdarmenn ef þörf er á og miðast þá styrkurinn við venjulegar styrkupphæðir miðað við dvalarlend (sjá tölfur hér fyrir ofan).  Beiðni um slíka styrki er færð inn í töflu fyrir fyldarmenn (accompanying persons) í umsókninni.

Styrkir fyrir fylgdarmenn (accompanying persons)

Mögulegt er að sækja um styrk fyrir fylgdarmenn t.d. nemenda og eru styrkupphæðir þá þær sömu og fyrir aðra þátttakendur – sjá töflur hér fyrir ofan.  Rökstyðja skal þörfina í skýringum með fjárhagsáætlun í umsókn.

Undirbúningsstyrkir (requested funding for preparation)

Mögulegt er að sækja um styrki fyrir menningar- og tungumálaundirbúning þátttakenda tveggja markhópa, þ.e. nemenda í starfsmenntun (IVT) og fólks á vinnumarkaði(PLM). Aðeins er hægt að veita styrk fyrir undirbúningi sem er umfram hefðbundna kennslu og skal kostnaðurinn sem sótt er um rökstuddur í umsókn og við uppgjör þurfa þátttakendur að staðfesta þátttöku í þeim undirbúningi sem skipulagður hefur verið.
Styrkupphæð er að hámarki 300 evrur á mann

Ekki er veittur styrkur fyrir menningar – og tungumálaundirbúningi fyrir  þáttakendur í flokki fagaðila í starfsmenntun (VETPRO)

Umsýslustyrkir (organisation of mobility)

Mögulegt er að sækja um styrk fyrir umsjón og skipulagningu verkefna.  Þessir styrkir skulu renna til þeirrar stofnunar sem sér um framkvæmd verkefnisins en ekki til einstakra þátttakenda.  Styrkurinn miðast við fjölda þátttakanda í verkefnum og er hámarksstyrkur 200 evrur fyrir hvern þátttakenda. Athugið að ekki er hægt að veita umsýslustyrk til fylgdarmanna.

 

Undirbúningsheimsóknir

Þessir styrkir eru veittir til ferða sem farnar eru til að undirbúa Leonardo verkefni, til dæmis með þátttöku í tengslaráðstefnum eða til að hitta samstarfsaðila á öðrum vettvangi. Það er afar mikilvæg fyrir aðila sem eru að undirbúa verkefni að hitta samstarfsaðila fyrirfram og það stuðlar að auknum gæðum umsókna og verkefna.

Meðan fjármagnið sem til ráðstöfunar er til þessa verkefnis endist er hægt að sækja um styrkina og eru umsóknir afgreiddar mánaðarlega. Styrkirnir geta verið nýttir til að greiða ferðir, uppihald og ráðstefnugjöld. Umsóknum er skilað til Leonardo skrifstofunnar, og veitir starfsfólk skrifstofunnar nánar upplýsingar um styrkina.

Frekari upplýsingar um undirbúningsheimsóknir og undirbúningsstyrki
 

Vantar þig samstarfsaðila?

Reglulega berast Landskrifstofunni erindi frá aðilum sem eru að leita eftir íslenskum samstarfsaðilum. Þessum erindum safnar starfsfólk Leonardo saman og setur hér á heimasíðuna.

Erindi sem hafa borist  2010, 2011
 

Nánari upplýsingar og aðstoð við umsækjendur

Nánari upplýsingar um mannaskipti veitir Margrét Jóhannsdóttir, marjoh(hjá)hi.is, verkefnisstjóri mannaskipta á Landsskrifstofu Leonardo.