Menntaáætlun Evrópusambandsins til ársins 2013 var ýtt úr vör í janúar 2007. Menntaáætlunin er mjög metnaðarfull áætlun sem sameinar undir einum hatti stuðning Evrópusambandsins við menntun á öllum stigum, frá leikskóla til háskóla og síðan fullorðinsfræðslu. Enskt heiti áætlunarinnar, „Lifelong learning programme“ vísar til þess að menntun sé verkefni sem vari frá vöggu til grafar.
Áætlunin styður við það markmið Evrópusambandsins að verða eitt helsta þekkingarsamfélag heims. Sér í lagi stefnir áætlunin að því að efla yfirfærslu þekkingar, samvinnu og mannaskipti milli mennta- og starfsþjálfunarkerfa í þátttökulöndunum með það að markmiði að þessi kerfi verði viðmið um gæði fyrir heiminn allan.
Aðgengi og fjárveiting
Menntaáætlun Evrópusambandsins 2007-2013 er aðgengileg umsækjendum sem búsettir eru í aðildarríkjum Evrópusambandsins, EFTA og EES, auk Tyrklands.
Fjárveiting til Menntaáætlunar ESB fyrir tímabilið 2007-2013 er áætluð um 7 milljarðar evra. Alls er um 901 milljón € áætluð fyrir styrki sem sótt er um vegna Menntaáætlunarinnar árið 2008. Upphæð styrkja sem og lengd verkefnis fer eftir þáttum eins og gerð verkefnis og fjölda þátttökulanda.
Dæmi um verkefni sem áætlunin styður
- Mannaskipti og hreyfanleika einstaklinga
- Samstarfsverkefni
- Verkefnin miða að yfirfærslu færni, reynslu og þekkingar milli landa og starfsgreina
- Verkefni sem fela í sér þróun nýjunga í menntun, s.s. nýtt námsefni eða nýjar leiðir til kennslu
-
Fjölþjóðleg netverkefni
Markmið og forgangsatriði
Almennt markmið menntaáætlunar Evrópusambandsins er að stuðla að þróun öflugs þekkingarsamfélags í Evrópu. Sérstök áhersla er lögð á samstarf og samnýtingu reynslu og þekkingar um menntun og þjálfun innan Evrópu.
Önnur markmið áætlunarinnar eru eftirfarandi:
- að taka þátt í að þróa gæði náms á öllum námsstigum og að stuðla að góðri frammistöðu, nýbreytni og evrópskri vídd í kerfum og framkvæmdum á þessu sviði;
- að styðja við myndun evrópsks svæðis fyrir nám á öllum æviskeiðum;
- að bæta gæði, aðdráttarafl og aðgengi að námi á meðal aðildarríkja;
- að efla framlag náms á öllum ævistigum til félagslegrar samheldni, virkrar þátttöku borgara í samfélaginu, umræðu milli menningarhópa og jafnrétti kynjanna.
- að stuðla að sköpunargleði, samkeppnishæfni, starfshæfni og frumkvöðlaanda;
- að stuðla að aukinni þátttöku í námi meðal fólks á öllum aldri óháð félags- og efnahagslegum bakgrunni, þar á meðal fólks með sérstakar þarfir og hópa sem eiga erfitt uppdráttar;
- að styrkja tungumálanám og fjölbreytileika tungumálsins;
- að styðja nýsköpun í þróun upplýsinga- og tölvutækni, þjónustu, kennslufræði og undirbúningi fyrir nám á öllum æviskeiðum;
- að efla hlutverk náms í að skapa evrópska borgaravitund byggða á skilningi og virðingu fyrir mannréttindum og lýðræði, auk umburðalyndis og virðingar gagnvart öðru fólki og menningarheimum;
- að stuðla að samstarfi um gæðaeftirlit á öllum sviðum menntunar og þjálfunar í Evrópu;
- að hvetja til þess að úrlausnir, niðurstöður, nýjar vörur og ný ferli séu nýtt á sem skilvirkastan hátt, og að deila árangursríkum starfsaðferðum á sviðum Menntaáætlunarinnar til að bæta gæði menntunar og þjálfunar.
Nokkur áhersluatriði, sem endurspegla þau atriði sem eru efst á baugi í evrópskri stefnumótun menntunar og þjálfunar, hafa forgang þegar umsóknir um styrk í menntaáætlunina eru metnar. Yfirforgangsatriði menntaáætlunar Evrópusambandsins er að ná almennu markmiði áætlunarinnar (sjá ofar).
Á síðum hverrar undiráætlunar er fjallað um verkefni hennar, áherslur, markmið og reglur.
Markmið og forgangsatriði:
Almennt markmið Menntaáætlunar Evrópusambandsins er að stuðla að þróun öflugs þekkingarsamfélags í Evrópu. Sérstök áhersla er lögð á samstarf og samnýtingu reynslu og þekkingar um menntun og þjálfun innan Evrópu.
Önnur markmið áætlunarinnar eru eftirfarandi:
- að taka þátt í að þróa gæði náms á öllum námsstigum og að stuðla að góðri frammistöðu, nýbreytni og evrópskri vídd í kerfum og framkvæmdum á þessu sviði;
- að styðja við myndun evrópsks svæðis fyrir nám á öllum æviskeiðum;
- að bæta gæði, aðdráttarafl og aðgengi að námi á meðal aðildarríkja;
- að efla framlag náms á öllum ævistigum til félagslegrar samheldni, virkrar þátttöku borgara í samfélaginu, umræðu milli menningarhópa og jafnrétti kynjanna.
- að stuðla að sköpunargleði, samkeppnishæfni, starfshæfni og frumkvöðlaanda;
- að stuðla að aukinni þátttöku í námi meðal fólks á öllum aldri óháð félags- og efnahagslegum bakgrunni, þar á meðal fólks með sérstakar þarfir og hópa sem eiga erfitt uppdráttar;
- að styrkja tungumálanám og fjölbreytileika tungumálsins;
- að styðja nýsköpun í þróun upplýsinga- og tölvutækni, þjónustu, kennslufræði og undirbúningi fyrir nám á öllum æviskeiðum;
- að efla hlutverk náms í að skapa evrópska borgaravitund byggða á skilningi og virðingu fyrir mannréttindum og lýðræði, auk umburðalyndis og virðingar gagnvart öðru fólki og menningarheimum;
- að stuðla að samstarfi um gæðaeftirlit á öllum sviðum menntunar og þjálfunar í Evrópu;
- að hvetja til þess að úrlausnir, niðurstöður, nýjar vörur og ný ferli séu nýtt á sem skilvirkastan hátt, og að deila árangursríkum starfsaðferðum á sviðum Menntaáætlunarinnar til að bæta gæði menntunar og þjálfunar.
Nokkur áhersluatriði, sem endurspegla þau atriði sem eru efst á baugi í evrópskri stefnumótun menntunar og þjálfunar, hafa forgang þegar umsóknir um styrk í Menntaáætlunina eru metnar. Yfirforgangsatriði Menntaáætlunar Evrópusambandsins er að ná almennu markmiði áætlunarinnar (sjá ofar).


