Umsóknarfrestir Leonardo 2013

Yfirfærsluverkefni 31 janúar 2013
Mannaskipti 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni 21. febrúar 2013


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




NSN_smellihnappur_2.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Til þess að geta sótt um styrki fyrir Leonardó verkefni er nauðsynlegt að hafa samstarfsaðila frá Evrópu. Í mannaskiptaverkefnum er  aðeins gerð krafa um einn samstarfsaðila frá fullgildu Evrópusambandslandi. Í yfirfærsluverkefnum þurfa þátttakendur að vera frá þremur löndum hið minnsta, þarf af að minnsta kosti einu Evrópusambandslandi.

Undirbúningsstyrkir

Undirbúningsstyrkir (preparatory visits grants) eru styrkir sem þeir sem hafa áhuga á að undirbúa verkefni og verkefnaumsóknir geta sótt um til Landskrifstofu menntaáætlunar ESB.
Nánar...

Tengslaráðstefnur

Það er mjög góð reynsla af þátttöku í tengslaráðstefnum sem hafa það markmið að leiða saman fólk sem áhuga hefur fyrir þátttöku í Leonardo verkefnum.  Það myndast tengsl milli fólks og oft eru þróaðar verkefnahugmyndir á slíkum ráðstefnum.  Þetta er einnig góð leið fyrir þá sem hafa hugmynd og þurfa að finna samstarfsaðila.  Upplýsingar um tengslaráðstefnur á döfinni birtast á síðunni Tengslaráðstefnur um leið og þær berast.

Evrópskar stofnanir í leit að samstarfsaðilum láta vita

Reglulega berast Landsskrifstofunni erindi frá aðilum sem eru að leita eftir íslenskum samstarfsaðilum.  Þessum erindum safnar starfsfólk Leonardó saman þannig að gott er að hafa samband við starfsfólk í því sambandi.

Gagnabankar yfir mögulega samstarfsaðila

Aðstoð frá Landskrifstofu

Starfsfólk Landsskrifstofunnar getur í mörgum tilfellum aðstoðað við leit að samstarfsaðilum í gegn um eigin tengslanet.  Hafið samband við Andrés Pétursson verkefnisstjóra vegna yfirfærslu- og þróunarverkefna og Margréti Jóhannsdóttur eða Ástu Vigdís Jónsdóttur vegna mannaskiptaverkefna.