Umsóknarfrestir Leonardo 2013

Yfirfærsluverkefni 31 janúar 2013
Mannaskipti 1. febrúar 2013
Samstarfsverkefni 21. febrúar 2013


 

Leonardo bæklingur


Gengistafla 

Til að fá upplýsingar um gengi á evru vs. ÍSK smelltu hér


 

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




NSN_smellihnappur_2.jpg

 

Smelltu hér til að fara á heimasíðu verkefnisins

 

Evrópusamvinna heimasíða

EVE_logo

 


 


Upplýsingar á vef EACEA 

Ný menntaáætlun Evrópusambandsins tók gildi í upphafi árs 2007 og er þá lokið 12 ára gildistíma Leonardo áætlunarinnar sem var ýtt úr vör hér á landi 11. maí 1995. Leonardo er nú starfsmenntahluti menntaáætlunarinnar sem gildir til ársins 2013.

Íslendingar eiga aðild að menntaáætluninni í gegnum samninginn um evrópska efnahagssvæðið (EES) og hafa verið mjög virkir þátttakendur í Leonardo frá upphafi. Á þessu 12 ára tímabili hefur rúmlega 13 milljónum evra verðið úthlutað til tilraunaverkefna og mannaskipta. Opinberir aðilar, fyrirtæki, skólar og stofnanir sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun geta lagt inn umsóknir um styrki á auglýstum umsóknarfrestum.

Í nýrri menntaáætlun ESB eru Leonardo og Socrates áætlanirnar sameinaðar í einni menntaáætlun. Hver undiráætlun er þó áfram sjálfstæð og reglurnar mismunandi fyrir hverja undiráætlun. Upplýsingar um Menntaáætlunina er að finna á síðu Evrópusambandsins.

Opinberir aðilar, fyrirtæki, skólar og stofnanir sem tengjast starfsmenntun og starfsþjálfun geta lagt inn umsóknir um styrki á auglýstum umsóknarfrestum.

Hér á heimasíðu Leonardo áætlunarinnar færðu upplýsingar er varða Leonardo; um það sem er að gerast á hverjum tíma, almenna kynningu á áætluninni og tveimur megintegundum verkefna sem styrkt eru; mannaskipti og tilraunaverkefni. Síðan veitir einnig greinargott yfirlit yfir þátttöku Íslendinga, tengingar á leitarvefi og almennar upplýsingar um starfsmenntun í Evrópu. Ítarlegri upplýsingar um Leonardo starfsmenntaáætlunina er að finna á heimasíðu áætlunarinnar í Brussel.