Upplýsingar á vef EACEA 

 

 

 

 

 

Upplýsingatækni er mikilvægur liður í öllum megin áætlunum menntaáætlunar ESB, Comenius, Erasmus, Grundtvig og Leonardo. Þveráætlun um upplýsingatækni er ætlað styrkja verkefni sem ná til tveggja eða fleiri af megin áætlununum.

Þveráætlun um upplýsingatækni snýst um hvernig hægt sé að virkja upplýsingatækni sem drifkraft félagslegra umbóta og nýsköpunar í menntakerfinu. Hún snýst ekki um nýjar tæknilegar lausnir heldur hvernig bæta megi menntun með notkun á upplýsingatækni.

Áætlunin skiptist í samstarfsverkefni og samstarfsnet

  • Samstarfsverkefnum er ætlað að styðja við nýsköpun og frumkvæði í kennslu og námi með notkun á upplýsingatækni. Sérstaklega í tenglum við hópa þar sem hætta er talin á einangrun, t.d. brottfallsnemendur í grunnskóla, minnihlutahópar og eldra fólk.
  • Samstarfsnetum er ætlað að efla tengsl „náms-samfélaga“ (learning communities)og hlúa að aukinni nýsköpun innan þeirra.

Nánari upplýsingar er að finna a vef framkvæmdastjórnar ESB og ýtarlega upplýsingar er að finna í fylgigögnum með auglýsingu eftir styrkjum hvers árs (Call for proposals).

Dæmi um verkefni.

Hægt er að skoða lista yfir samþykkt verkefni (Key Activity 3 – Compendium) á vef EACEA.

Umsjón með áætluninni

Framkvæmdastjórn ESB hefur falið framkvæmdaskrifstofu ESB um mennta- og menningarmál (Education, Audiovisual and Culture Executive Agency, EACEA) umsjón með þveráætlunum.  Öll formleg umsjón (umsóknir, mat umsókna, samningsgerð) er á höndum þessarar skrifstofu.
Hlutverk Landskrifstofu er að miðla upplýsingum um áætlunina og aðstoða umsækjendur eins og kostur er.