Leonardo - starfsmenntun
Öll verkefni sem Leonardo áætlunin styður þurfa að falla að einu eða fleiri þessara markmiða:
-
Að styðja einstaklinga til þátttöku í sí- og endurmenntun sem miðar að því að auka kunnáttu og færni og efla persónulega hæfni þeirra
-
Að efla gæði og styðja við nýsköpun í starfsmenntun innan fræðslu- og menntastofnana og í vinnustaðanámi
- Að auka aðdráttarafl starfsmenntunar og starfsþjálfunar meðal atvinnurekenda og einstaklinga og greiða fyrir hreyfanleika nemenda í starfsþjálfun
Fréttir og tilkynningar
Landskrifstofa Menntaáætlunar Evrópusambandsins hefur nú úthlutað fjármagni ársins 2013 til umsókna sem bárust í febrúar síðastliðinn. Alls bárust 39 umsóknir þar sem sótt var um 1,5 milljón evra. Styrkupphæðinni, 524 þúsund evrum eða um 84 milljónum króna, var úthlutað til 31 skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir um 200 einstaklinga.
![]() |
Tuttugu og sex listnámsnemendur og kennarar frá fjórum löndum munu dvela í vinnubúðum á Sólheimum í Grímsnesi dagana 2. - 6. júní næstkomandi til að leggja lokahönd á tveggja ára samstarfsverkefni á sviði list- og verkmenntunar. Verkefnið gengur undir nafninu TIA (Tradition, Innovation and Assessment in Vocational Art Education and Traning) og er styrkt af Menntaáætlun Evrópusambandsins. Tilgangur þess er að efla samvinnu milli landa í list- og verkgreinum.
![]() |
Nú er verkefnið OWLS (Outcome that Works for Stakeholders) orðið 1,5 ára en verkefnið fékk 389.036 evru styrk frá Menntaáætlun Evrópusambandsins
ATH! Kóðinn fyrir íslensku Landskrifstofuna (Identification) er IS1 LLP (LME)
Umsóknarfrestur um Leonardo yfirfærslu og mannaskiptaverkefna fer að renna út:
Yfirfærsluverkefni - fimmtudaginn 31. janúar
Mannaskiptaverkefni – föstudaginn 1. febrúar
Kynning á tækifærum og styrkjum í evrópsku og norrænu samstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 17. janúar 2013 kl. 15-17. Allir velkomnir!








