Markmið Grundtvig:
- Auka ferðamöguleika fullorðinsfræðslukennara
- Efla gæði og umfang samvinnuverkefna
- Auka getu fólks til að taka fullan þátt í þjóðfélaginu og gera sér grein fyrir mismunandi menningu þjóða
- Auka atvinnumöguleika einstaklinga með því að efla kunnáttu og þekkingu
- Gefa fólki tækifæri til að stunda formlegt nám að nýju innan eða utan skólakerfis og með fjarnámi/sjálfsnámi
- Hvetja til símenntunar og endurmenntunar með evrópsku samstarfi
- Auðvelda fólki að bæta menntun sína eða öðlast réttindi þegar því hentar með auknu framboði og bættu aðgengi að námi
- Fullorðnir námsmenn verði í brennidepli í námsferlinu
- Stuðla að þróun hagnýtra afurða og nothæfs árangurs verkefna sem hægt er að nýta í mörgum þátttökuríkjum
- Stuðla að samvinnu evrópskra fullorðinsfræðslustofnana
- Bæta gæði menntunar þeirra sem kenna fullorðnum
- Auka umræðu um símenntun og kynna það sem vel hefur verið gert
Sérstök markmið:
- Að takast á við að meðalaldur Evrópubúa er að hækka
- Veita fullorðnum aðgang að leiðum til að bæta þekkingu og færni


