Umsóknarfrestir Grundtvig 2013

Endurmenntun (IST):
16. janúar 2013 (fyrir námskeið frá 1. maí 2013)
30. apríl 2013 (fyrir námskeið frá 1. september 2013)
17. september 2013 (fyrir námskeið frá 1. janúar 2014)
Samstarfsverkefni:
21. febrúar 2013
Vinnustofur:
21. febrúar 2013
Aðstoðarkennari:
28. mars 2013
Sjálfboðaliðaverkefni 50+:
28. mars 2013


Grundtvig bæklingur


Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar


 


Upplýsingar á vef EACEA

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einstaklingsverkefni

Umsóknir & eyðublöð
 

Samstarfsverkefni

Umsóknir & eyðublöð
 

Miðstýrð þróunarverkefni

Umsóknir & eyðublöð
 

Grundtvig net

Umsóknir & eyðublöð

Grundtvig undirbúningsheimsóknir

Umsóknir & eyðublöð

Leiðbeiningar fyrir rafræn umsóknareyðublöð

Vinsamlegast byrjið á því að sækja ykkur handbókina fyrir rafræna umsóknareyðublaðið (sækja pdf) og lesa ykkur til um helstu atriði, áður en þið hefjist handa við að vinna með umsóknareyðublaðið. Rafræna umsóknareyðublaðið er pdf-skjal sem hægt er að opna og vinna með í Adobe Reader.

Adobe Reader er ókeypis forrit og er hægt að sækja það á www.adobe.com

Helstu þrepin sem þarf að fara í gegnum til þess að senda inn gilda umsókn:

  1. Vista rafræna umsóknareyðublaðið í tölvunni sem PDF skjal. Loka vafraglugganum.  Opna umsóknareyðublaðið í tölvunni og hefjast handa við að fylla út í reitina.
     
  2. Ganga úr skugga um að allir skyldureitir séu útfylltir. Skyldureitir sem þarf að fylla út eru merktir með rauðu. Til að ganga úr skugga um að allir skyldureitir hafi verið fylltur út, þarf að smella á Validate-hnappinn.
     
  3. Reikna út fjárhagsupplýsingar (smellt á  „Calculate“-hnappinn). Tölva þarf að vera nettengd á meðan á útreikningi stendur.
     
  4. Senda inn rafrænt afrit umsóknarinnar. Smelltu á hnappinn „Submit online“-hnappinn. Ef sendingin heppnast, sérðu „Submission Status: OK“ undir fyrirsögninni „Submission Summary“ Ef rafræn sendingin heppnast ekki, smellið á hnappinn "Create email attachment" til að senda landskrifstofu rafræna afritið af umsókninni í tölvupósti. Ef það gengur ekki, vinsamlegast hafið samband við Landskrifstofu.
     
  5. Prentið út umsóknina (smellið á „Print form“-hnappinn).
     
  6. Undirritið/látið undirrita umsóknina (ath. aðeins sá sem má skuldbinda stofnunina má undirrita umsókn).
     
  7. Sendið umsóknina til Landskrifstofu í pósti fyrir lok umsóknarfrest (póststimpill gildir). Ath. það er hið útprentaða eintak umsóknarinnar sem er hin gilda umsókn.