Umsóknarfrestir Comenius 2013

Nemendaskipti 3 des 2012
Endurmenntun,
16. jan, 30 apríl, 17 sept 2013
Aðstoðakennarar, 31. jan 2013
Samstarfsverkefni 21. feb 2013
Svæðasamstarf 21. feb 2013

 


Comenius bæklingur

Upplýsingar um Menntáætlun ESB á vef Framkvæmdastjórnarinnar




Upplýsingar á vef EACEA


 

Evrópusamvinna heimasíða

 

 

 

 

 

Svæðasamstarfsverkefni (Comenius Regio) styrkja samstarf skóla milli héraða og borgarsamfélaga í Evrópu með það að markmiði að miðla reynslu og taka á málefnum að eigin vali.

Svæðasamstarfsverkefni miða að því að aðstoða sveitastjórnir og svæðisskrifstofur við að bæta möguleika til menntunar fyrir nemendur á skólaaldri. Skólayfirvöldum, svæðisskrifstofum og öðrum sem koma að skólamálum er boðið að setja af stað evrópsk samvinnuverkefni með sameiginleg markmið og áhugasvið í huga.

Í svæðasamstarfsverkefnum eru styrkir veittir til verkefnavinnu og ferða þátttakenda tveggja sveitarfélaga í Evrópu. Samstarfsverkefnin geta til dæmis falið sér starfsmannaskipti, þjálfun kennara, jafningjafræðslu eða námsheimsóknir. Þá er ótalin ýmis konar önnur starfsemi sveitarfélaga sem styrkt er svo sem kannanir, rannsóknir, nýjar kennsluaðferðir og ýmis konar herferðir.
 

Hverjir koma til greina?

Í svæðasamstarfsverkefnum eiga að vera að minnsta kosti einn skóli á leik- grunn- eða framhaldsskólastigi ásamt skólayfirvöldum á svæðinu. Hverjir taka þátt fer eftir viðfangsefni samstarfsins hverju sinni. Til dæmis: bókasafn, íþróttafélag, ungmenna- eða tómastundafélag. Á heimasíðu framkvæmdastjórnar má sjá þá skóla sem koma til greina í samstarf.
 

Viðfangsefni

Comenius Regio samstarfsverkefni geta snúist um hvaða umfjöllunarefni sem er sem tengist skólamálum og áhugasviði þeirra tveggja sveitarfélaga/héraða sem taka þátt. Viðfangsefni geta til dæmis snúið að:

  • skólastjórnunarmálum
  • þjálfun kennara
  • því að koma á viðvarandi evrópsku/alþjóðlegu samstarfi í menntamálum
  • móttöku nýbúa
  • frumkvöðlastarfi í menntamálum
  • því að draga úr brottfalli nemenda

Ætlast er til þess af þátttakendum að þeir vinni jöfnum höndum að samstarfsverkefninu og sjái sér hag í að nýta niðurstöður þess í sínu starfi.
 

Hlutverk bæjar- og sveitarfélaga

Bæjar- eða sveitarfélag er ábyrgt  fyrir framkvæmd verkefnisins á svæðinu. Hlutverk þess er að skrifa undir samning, sjá um fjármál og stýra verkefninu. Það tryggir dreifingu og notkun afurða verkefnis þegar því lýkur.

 

Nánari útlistun á ensku - svæðasamstarf 2013 Sækja skjal

Umsóknarfrestur vegna Comenius Svæðasamstarfsverkefna er til 21. febrúar 2013. Jafnframt má nálgast upplýsingar um umsóknarfresti hér.

Umsóknir og eyðublöð
 

Dæmi um gott verkefni 2009-2011 

Þjónustumiðstöð miðborgar og Hlíða í Reykjavík fékk styrk til 2 ára 2011

SPICE hét verkefnið og byggði á samvinnu Þjónustumiðstöðvar miðborgar og Hlíða í Reykjavík og Consejeria de Educacion y Ciencis de Principado de Asturias og fleiri stofnana þeim tengdum.
Markmið verkefnisins er að bæta stefnumörkun og aðferðafræði til aðlögunar fyrir innflytjenda-nemendur og fjölskyldur þeirra. 
þannig að þau falli inn í skóla-og menningarumhverfi, burtséð frá móðurmáli, menningu eða félagslegum aðstæðum.
Markmiðin eru:
 
Að deila dæmum um góðar aðferðir
Að greina sérstakar þarfir innflytjenda-nemenda og fjölskyldna þeirr
Að þróa tæki fyrir upphafsmat og þarfir nemenda
Að gefa út handbók fyrir skóla um virka þátttöku foreldra þessara nemenda
Að koma á framtíðartengslum milli þessara tveggja héraða á í Astúríu og Reykjavíkur.
 
Útkoma : Öll meginmarkmið verkefnisins náðust. Einnig gafst tækifæri til að greina mismunandi stuðningsleiðir í hvoru héraði til að svara þessum þörfum hvað varðaði að koma á framfæri og styrkja ,,skóla fyrir alla" 
Það er þörf fyrir grunn- og endurmenntun kennara á þessu sviði til að mæta sífellt flóknari samsetningu bekkja. Verkefnið þróaði greiningartæki til að meta inflytjenda-nema við upphaf námsferils og síðan að fylgja þeim eftir og meta námsferil og félagslega framför. Einnig hefur verið þróuð handbók fyrir skóla hvernig eigi að virkja foreldra í menntun barna þeirra og bjóða velkomnar fjölskyldur sem eru nýfluttar til landsins. Reynt var að virkja skólasöfn, unglingathvörf, menningarmiðstöðvar og fleiri til að taka þátt í þessu verkefni.
Nánar um Spice verkefnið: comeniusregiospice.wordpress.com